Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 23. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 20. maí 2021

142/2004

Reglugerð um viðurkenningu flokkunarfélaga og um reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og -skoðun.

1. gr. Markmið og tilgangur.

Í reglugerð þessari er kveðið á um tilteknar aðferðir sem fylgja skal við skoðun, eftirlit og viðurkenningu skipa í því skyni að fara að alþjóðasamningum um öryggi á hafi úti og varnir gegn mengun sjávar ásamt því að stuðla að frelsi til að veita þjónustu. Þetta ferli felur í sér þróun og framkvæmd öryggiskrafna sem gilda um bol, vél-, raf- og stjórnbúnað skipa sem falla undir gildissvið alþjóðasamninganna.

2. gr. Skilgreiningar.

Í þessari reglugerð er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:

a) Skip: skip sem falla undir gildissvið alþjóðasamninganna;
b) Skip sem sigla undir íslenskum fána: skip sem er skráð á íslenska skipaskrá og siglir undir íslenskum fána í samræmi við lög um skráningu skipa nr. 115/1985, með síðari breytingum. Skip sem falla ekki undir þessa skilgreiningu teljast annaðhvort sigla undir fána aðildarríkis EES-samningsins eða þriðja ríkis.;
c) Skoðanir og eftirlit: skoðanir og eftirlit sem skylt er að framkvæma samkvæmt alþjóðasamningunum;
d) Alþjóðasamningar: alþjóðasamningurinn um öryggi mannslífa á hafinu frá 1974 (SOLAS), alþjóðasamningur um hleðslumerki skipa frá 1966 og alþjóðasamningur (1973/78) um varnir gegn mengun frá skipum svo og bókanir og breytingar við þá, ásamt reglum sem tengjast þeim og eru bindandi í öllum aðildarríkjunum og í gildi eru samkvæmt nýjustu útgáfu þeirra;
e) Stofnun: flokkunarfélag eða annar einkaaðili sem framkvæmir öryggismat fyrir Samgöngustofu;
f) Viðurkennd stofnun: stofnun sem hefur hlotið viðurkenningu í samræmi við 4. gr.;
g) Leyfi: sú framkvæmd af hálfu Samgöngustofu að veita viðurkenndri stofnun leyfi eða fela henni vald;
h) Skírteini: skírteini gefið út fyrir hönd Íslands í samræmi við alþjóðasamninga;
i) Flokkunarskírteini: skjal sem gefið er út af flokkunarfélagi til marks um að smíði skips og vélbúnaður þess til tiltekinna nota eða reksturs sé í samræmi við ákvæði og reglur sem flokkunarfélagið hefur mælt fyrir um og birt opinberlega;
j) Öryggisskírteini fyrir fjarskiptabúnað flutningaskipa: skírteini sem kveðið er á um í breyttum alþjóðareglum um þráðlaus fjarskipti samkvæmt samningnum um öryggi mannslífa á hafinu (SOLAS 74/78), samþykktum af Alþjóðasiglingamálastofnuninni;
k) Staðsetning: sá staður þar sem skráða skrifstofu, aðalstjórn eða aðalstarfsemi stofnunar er að finna.

3. gr. Alþjóðasamningar og beiting heimilda samkvæmt þeim.

Samgöngustofa ber að tryggja að ákvæði alþjóðasamninganna séu virt, einkum að því er varðar eftirlit og skoðun skipa og útgáfu skírteina og undanþáguskírteina. Skal hún starfa eftir viðeigandi ákvæðum viðauka við reglugerð þessa og viðauka við ályktun Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar A.847(20).

Ef Samgöngustofa ákveður, í samræmi við 1. mgr., að því er varðar skip sem sigla undir íslenskum fána:

i) að veita stofnun leyfi til að framkvæma að fullu eða að hluta allt eftirlit og allar skoðanir sem tengjast skírteinum, og ef við á, að gefa út eða endurnýja tengd skírteini; eða
ii) að láta stofnanir framkvæma að fullu eða að hluta eftirlit og skoðanir sem um getur í undirlið i);

skal hún eingöngu fela viðurkenndum stofnunum þessar skyldur.

Samgöngustofa þarf í öllum tilvikum að vera sá aðili sem samþykkir fyrstu útgáfu undanþáguskírteinanna.

Að því er varðar öryggisskírteini fyrir fjarskiptabúnað flutningaskipa má fela þessar skyldur fyrirtækjum sem Samgöngustofan eða Póst- og fjarskiptastofnun viðurkenna og búa yfir nægilegri sérþekkingu og hæfu starfsfólki til að framkvæma fyrir þeirra hönd sérhæft mat á öryggisþáttum fjarskipta.

Þessi grein á ekki við um útgáfu skírteina fyrir tiltekna hluta búnaðar um borð í skipum.

4. gr. Viðurkenning stofnana.

Stofnun skal senda beiðni um viðurkenningu til Samgöngustofu sem sendir Eftirlitsstofnun EFTA beiðni um viðurkenningu stofnunar í samræmi við tilskipun ráðsins nr. 94/57/EB um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og -skoðun fyrir tilheyrandi starfsemi siglingayfirvalda, með síðari breytingum.

5. gr. Starfsleyfi stofnana.

Samgöngustofa veitir viðurkenndum stofnunum leyfi til að sjá um skipaeftirlit og -skoðun hér á landi.

Við beitingu i) liðar 2. mgr. 3. gr. skal Samgöngustofa að meginreglu til ekki synja þeim viðurkenndu stofnunum sem staðsettar eru á Evrópska efnahagssvæðinu um leyfi til að vinna slík verkefni að teknu tilliti til ákvæðanna í 6. og 9. gr. Þó má Siglingastofnun takmarka fjölda stofnana sem hún veitir leyfi við þá þörf sem er fyrir hendi að því tilskildu að það sé gert með gagnsæjum og hlutlausum hætti.

Skilyrði starfsleyfis er að ákvæði þessarar reglugerðar séu uppfyllt, auk þess skal viðurkennd stofnun:

a) hafa skrifstofu á Íslandi,
b) hafa minnst einn skoðunarmann, sem starfar fyrir félagið og hefur fast aðsetur á Íslandi,
c) vera fullgildur aðili í alþjóðasamtökum flokkunarfélaga (IACS).

6. gr. Samningar Samgöngustofu við stofnanir (flokkunarfélög).

Ef Samgöngustofa ákveður að gera eins og lýst er í 2. mgr. 3. gr. skal stofnunin koma á samvinnu við viðkomandi stofnanir. Slík samvinna skal byggjast á formlegum, skriflegum samningi á jafnréttisgrundvelli sem felur að minnsta kosti í sér:

a) ákvæði II. viðbætis ályktunar Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar A.739(18) um viðmiðunarreglur vegna leyfisveitingar fyrir stofnanir sem starfa fyrir hönd yfirvalda en jafnframt skal taka mið af viðaukum, viðbætum og fylgiskjali IMO MSC/umburðarbréf 710 og MEPC/umburðarbréf 307 um fyrirmynd að samkomulagi um leyfisveitingar fyrir stofnanir sem starfa á vegum yfirvalda;
b) eftirfarandi ákvæði varðandi fjárskuldbindingar:
i) ef yfirvöld eru endanlega og afdráttarlaust dæmd samkvæmt úrskurði dómstóls til að bera bótaábyrgð sökum óhapps eða ef gerðardómi er beitt sem lið í lausn deilumáls og auk þess gerð krafa um bætur til tjónþola sökum taps, eignatjóns, líkamstjóns eða mannsláts sem sýnt hefur verið fram á fyrir dómstólnum að rekja megi til vísvitandi athæfis, vanrækslu eða vítaverðs gáleysis af hálfu viðurkenndu stofnunarinnar eða aðila, starfsmanna, fulltrúa eða annarra sem starfa fyrir hennar hönd skulu yfirvöldin eiga kröfu á hendur viðurkenndu stofnuninni um fébætur að svo miklu leyti sem viðurkennda stofnunin er, samkvæmt úrskurði dómstólsins, völd að framangreindu tapi, tjóni, líkamstjóni eða mannsláti;
ii) ef yfirvöld eru endanlega og afdráttarlaust dæmd samkvæmt úrskurði dómstóls til að bera bótaábyrgð sökum óhapps eða ef gerðardómi er beitt sem lið í lausn deilumáls og auk þess gerð krafa um bætur til tjónþola sökum líkamstjóns eða mannsláts sem sýnt hefur verið fram á fyrir dómstólnum að rekja megi til hvers konar gáleysis, glæfralegs athæfis, eða vanrækslu af hálfu viðurkenndu stofnunarinnar, starfsmanna hennar, fulltrúa eða annarra sem starfa fyrir hennar hönd skulu yfirvöldin eiga kröfu á hendur viðurkenndu stofnuninni um fébætur að svo miklu leyti sem viðurkennda stofnunin er, samkvæmt úrskurði dómstólsins, völd að framangreindu líkamstjóni eða mannsláti;
iii) ef yfirvöld eru endanlega og afdráttarlaust dæmd samkvæmt úrskurði dómstóls til að bera bótaábyrgð sökum óhapps eða ef gerðardómi er beitt sem lið í lausn deilumáls og auk þess gerð krafa um bætur til tjónþola sökum taps eða eignatjóns, sem sýnt hefur verið fram á fyrir dómstólnum að rekja megi til hvers konar gáleysis, glæfralegs athæfis eða vanrækslu af hálfu viðurkenndu stofnunarinnar eða starfsmanna hennar, fulltrúa eða annarra sem starfa fyrir hennar hönd skulu yfirvöldin eiga kröfu á hendur viðurkenndu stofnuninni um fébætur að svo miklu leyti sem viðurkennda stofnunin er, samkvæmt úrskurði dómstólsins, völd að framangreindu tapi eða tjóni;
c) ákvæði um reglulega úttekt yfirvalda eða utanaðkomandi aðila skipuðum af yfirvöldum á þeim störfum sem stofnanir framkvæma á vegum þeirra eins og um getur í 1. mgr. 9. gr.;
d) möguleika á að hægt sé að framkvæma nákvæmar úrtaksskoðanir á skipum;
e) ákvæði um að tilkynna mikilvægar upplýsingar um flokkaðan flota þeirra, breytingar á flokkun skipa eða útstrikun þeirra úr flokki sem um getur í 3. mgr. 11. gr.

Samvinnu á grundvelli þessarar greinar skal tilkynna til Eftirlitsstofnunar EFTA. Tilkynningu skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um samvinnu hinnar viðurkenndu stofnunar og Samgöngustofu.

7. gr. Afturköllun viðurkenningar.

Eftirlitsstofnun EFTA afturkallar viðurkenningu þeirra viðurkenndu stofnana sem um getur í 4. gr. ef þær uppfylla ekki lengur kröfurnar sem mælt er fyrir um í viðaukanum eða ef frammistaða þeirra, að því er varðar öryggi og mengunarvarnir, uppfyllir ekki kröfurnar sem um getur í 2. mgr.

8. gr. Afturköllun starfsleyfis.

Þrátt fyrir viðmiðanirnar, sem tilgreindar eru í viðauka með reglugerð þessari, getur Samgöngustofa ákveðið að fella úr gildi leyfi ef hún telur að viðurkennd stofnun eigi ekki lengur að hafa leyfi til að framkvæma fyrir hennar hönd þau verkefni sem tilgreind eru í 3. gr. Siglingastofnun skal tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA og hinum EES-ríkjunum um slíka ákvörðun án tafar og gefa rökstuddar ástæður fyrir henni.

9. gr. Eftirlit með viðurkenndum stofnunum.

Samgöngustofa skal ganga úr skugga um að viðurkenndar stofnanir, sem starfa á Íslandi fyrir hana í skilningi 2. mgr. 3. gr., inni af hendi þau hlutverk sem um getur í þeirri grein. Samgöngustofa skal sinna slíku eftirliti á a.m.k. tveggja ára fresti og skal samgönguráðherra skila EES-ríkjunum og Eftirlitsstofnun EFTA skýrslu um niðurstöðu þessa eftirlits eigi síðar en 31. mars árið eftir að eftirlitstímabilinu lýkur.

Þá skal Samgöngustofa tryggja að hvert það skip sem siglir undir íslenskum fána sé smíðað og því viðhaldið í samræmi við íslenskar kröfur eða í samræmi við kröfur sem viðurkennd stofnun gerir um bol, vél-, raf- og stjórnbúnað.

Samgöngustofa er heimilt að nota reglur sem hún telur jafngildar reglum viðurkenndrar stofnunar að því gefnu að hún tilkynni Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) án tafar um þær, í samræmi við málsmeðferðina í tilskipun 98/34/EB sbr. ákvörðun sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 146/99 og að hvorki Eftirlitsstofnun EFTA né önnur EES-ríki andmæli reglunum og að það verði ekki staðfest samkvæmt málsmeðferðinni í 2. mgr. 7. gr. tilskipunar 2001/105/EB að þessar reglur séu ekki jafngildar.

10. gr. Tilkynningarskylda í tengslum við hafnarríkiseftirlit.

Í tengslum við skoðanarétt og skyldur sem hafnarríki skal Samgöngustofa tilkynna EES-ríkjunum og Eftirlitsstofnun EFTA ef hún kemst að því að stofnanir, sem starfa fyrir hönd fánaríkis, gefa út gild skírteini til handa skipi sem uppfyllir ekki viðeigandi kröfur alþjóðasamninganna eða í hvert sinn sem kemur í ljós að skip með gilt flokkunarfélagsskírteini uppfyllir ekki þær kröfur sem því ber samkvæmt því skírteini. Að því er þessa grein snertir skal eingöngu tilkynnt um skip sem stofna öryggi og umhverfi í alvarlega hættu eða þar sem vísbendingar eru fyrir hendi um mikla vanrækslu af hálfu stofnanna. Gera skal viðurkenndu stofnuninni sem í hlut á, grein fyrir slíku þegar upphafleg skoðun fer fram svo að hún geti þegar í stað gripið til viðeigandi ráðstafana í framhaldi af því.

11. gr.

Viðurkenndar stofnanir skulu ráðfæra sig hver við aðra með jöfnu millibili í því skyni að tæknilegir staðlar þeirra séu ávallt jafngildir svo og framkvæmd þeirra, í samræmi við ákvæði ályktunar Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar A.847(20) um viðmiðunarreglur um aðstoð við fánaríki við framkvæmd löggerninga Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar.

Viðurkenndar stofnanir skulu láta í ljós vilja til að vinna með eftirlitsyfirvöldum hafnarríkis þegar um er að ræða eitt af skipum í þeirra flokki, einkum til að auðvelda leiðréttingu á annmörkum eða misræmi sem tilkynnt er um.

Viðurkenndar stofnanir skulu útvega Samgöngustofu allar viðeigandi upplýsingar um flokkaðan flota þeirra, tilfærslur milli stofnana, breytingar, niðurfellingar og útstrikun skipa úr flokki, óháð því undir hvaða fána þau sigla. Upplýsingar um tilfærslur milli stofnana, breytingar, niðurfellingar og útstrikun skipa úr flokki, þ. m. t. upplýsingar um allar óafgreiddar skoðanir og tilmæli, flokkunarskilyrði, skilyrði fyrir rekstri eða takmarkanir á honum, sem gefin eru út fyrir skip sem þær hafa flokkað, skulu – óháð því undir hvaða fána skipin sigla – sendar Sirenac-upplýsingakerfinu og birtar á vefsíðum þessara viðurkenndu stofnana ef slíkar vefsíður eru fyrir hendi.

Viðurkenndar stofnanir skulu ekki gefa út skírteini fyrir skip sem hefur verið strikað út úr flokki eða þar sem flokknum hefur verið breytt af öryggisástæðum, óháð því undir hvaða fána þau sigla, fyrr en lögbærum yfirvöldum fánaríkisins hefur gefist hæfilegur frestur til að skila áliti sínu svo að unnt sé að ákveða hvort nauðsynlegt sé að krefjast alhliða skoðunar.

Við tilfærslu skips frá einni stofnun til annarrar skal sú stofnun, sem lætur skipið af hendi, m.ö.o. víkjandi stofnun, upplýsa stofnunina, sem tekur við skipinu, um allar skoðanir og tilmæli, sem dregist hefur að sinna og komin eru fram yfir tímann, um flokkunarskilyrði, skilyrði fyrir rekstri eða takmarkanir á honum sem gefin eru út fyrir skipið. Við tilfærslu skal víkjandi stofnunin láta viðtökustofnuninni í té heildarferilsskrá skipsins. Viðtökustofnunin getur þá fyrst gefið út skírteini fyrir skipið þegar öllum skoðunum, sem eru á eftir áætlun, er lokið og öll tilmæli eða flokkunarskilyrði, sem gefin hafa verið út fyrir skipið en eru komin fram yfir tímann, eru afgreidd með þeim hætti sem víkjandi stofnun mælir fyrir um. Áður en skírteinin eru gefin út skal viðtökustofnunin gera víkjandi stofnuninni grein fyrir dagsetningu útgáfu skírteinanna og staðfesta hvenær, hvar og til hvaða aðgerða verður gripið til að afgreiða skoðanir, tilmæli og flokkunarskilyrði sem dregist hefur að sinna. Viðurkenndu stofnanirnar skulu vinna saman að því að koma ákvæðum þessarar málsgreinar í framkvæmd með viðeigandi hætti.

12. gr. Lagaheimildir.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 10. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 47/2003 til innleiðingar á tilskipun nr. 94/57/EB sem vísað er til í 55-b lið, 13. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 30/1995 eins og henni var breytt með tilskipun 97/58/EB sbr. ákvörðun sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 33/98 og tilskipun 2001/105/EB sbr. ákvörðun sameiginlegu EES nefndarinnar 56/02.

13. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.