Fara beint í efnið

Prentað þann 28. apríl 2024

Stofnreglugerð

123/2024

Reglugerð um brottfall reglugerðar nr. 1241/2023 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/932 um samræmt, hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits að því er varðar aðskotaefni í matvælum, um sértækt viðbótarinnihald landsbundinna eftirlitsáætlana til margra ára og sértækar viðbótarráðstafanir vegna undirbúnings þeirra.

1. gr.

Reglugerð nr. 1241/2023 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/932 frá 9. júní 2022 um samræmt, hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits að því er varðar aðskotaefni í matvælum, um sértækt viðbótarinnihald landsbundinna eftirlitsáætlana til margra ára og sértækar viðbótarráðstafanir vegna undirbúnings þeirra, fellur brott.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a. laga nr. 93/1995 um matvæli, 13. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 6. gr. laga nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr og 74. gr. laga nr. 14/2022 um dýralyf.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 15. janúar 2024.

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.