Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 29. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 29. mars 1965 – 31. des. 1980 Sjá núgildandi

64/1965

Reglugerð um holræsi og holræsagerð í Ólafsvík.

1. gr.

Hreppsnefnd hefur ein heimild til þess að legg,ja holræsi um Ólafsvíkurkauptún. Holræsagerð hreppsins er sjálfstætt fyrirtæki með sérstöku reikningshaldi.

2. gr.

Þar sem hreppsnefnd hefur látið leggja holræsi í götu, veg eða opið svæði, er hverjum húseiganda, sem 1óð á þar að, skylt að legg,ja á Sinn kostnað ræsi frá húsinu, sem flytji skólp frá húsinu út i aðalræsi og halda því við.

Regnvatn af húsi og 1óð skal einnig að svo miklu leyti sem unnt er, lent í holræsið. Ef húseigandi vanrækir að leggja holræsi innan hæfilegs frests, sem hreppsnefnd tiltekur, skal verkið unnið á hans kostnað.

Greiða skal krónur 500.00 i tengigjald.

3. gr.

Áður en húseigandi byrjar að legg,ja ræsi, skal hann skýra verkstjóra hreppsnefndar eða þeim, er hún felur umsjón með lagningu holræsa í kauptúninu, frá því og fá samþykki þar til.

Lega, halli, stærð og gerð pípna, brunnar, vatnslása og yfir höfuð alts þess, sem skolplögninni innan og utan húss tilheyrir, skal ákveðið í samráði við umsjónarmann. Hann skal og hafa umsjón með verkinu, og er húseiganda skylt að hlýða fyrirmælum hans í öllu því, sem að tilhögun og lagningu ræsanna lýtur.

Umsjónarmaður getur krafizt uppdráttar, sem sýni glögglega alla tilhögun lagnarinnar.

4. gr.

Hreppsnefnd löggildir menn, sem teljast skulu hæfir að leggja og ganga frá ræsum, óæði innan húss og utan. Þeir einir, sem hreppsnefnd löggildir til holræsalagningar, skulu hafa rétt til að leggja og ganga frá skolpræsum, sem standa i sambandi við holræsakerfi hreppsins.

5. gr.

Kostnað við holræsagerð hreppsins greiðist af holræsagerðinni, til þess að standast útgjöld þau, sem stafa af lagningu holræsanna, ber hverjum þeim, sem hús á, lóð eða lóðarréttindi við götu, veg eða opin svæði, sem hreppurinn hefur lagt holræsi í, að greiða árlega til holræsagerðarinnar 1% af fasteignarnati húss og lóðar, þó aldrei minna en krónur 400.00 af húsi eða hluta af húsi, sem talinn er sér i fasteignamati, enda sé skolplögn að viðkomandi húseign eða húshluta.

Gjöld samkvæmt grein þessari er hreppsnefnd heimilt að hækka eða lækka um allt að 50 af hundraði, án þess að samþykki ráðuneytis komi til.

6. gr.

Heimilt er hreppsnefnd að yfirtaka núverandi holræsakerfi einstakra aðila samkvæmt samkomulagi við hlutaðeigendur eða samkvæmt mati, ef ágreiningur verður.

7. gr.

Húseigandi ber ábyrgð á greiðslu holræsagjalds. Gjaldið hefur lögtaksrétt og er tryggt með lögveðsrétti í lóð og mannvirkjum lóðareiganda á henni næstu 2 ár eftir gjalddaga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Árlegur gjalddagi holræsagjalda er 1. júní ár hvert.

8. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum allt að 1000.00 krónum, sem rennur í ríkissjóð. Mál út af brotum gegn reglugerð þessar skal fara með sem opinber mál.

Reglugerð þessi, sem hreppsnefnd Ólafsvíkurhrepps hefur samið og samþykkt samkvæmt lögum nr. 15 20. júní 1923, staðfestist hér með til að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Félagsmálaráðuneytið, 29. marz 1965

F. h, r.

Hjálmar Vilhjálmsson.

Hallgrímur Dalberg.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.