Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 27. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 20. feb. 1989 – 26. júní 1991 Sjá núgildandi

62/1989

Reglugerð um bann við áfengisauglýsingum

1. gr.

Hvers konar auglýsingar á áfengi og einstökum áfengistegundum eru bannaðar.

Enn fremur er bannað að sýna neyslu eða hvers konar aðra meðferð áfengis í auglýsingum eða upplýsingum um annars konar vöru eða þjónustu.

2. gr.

Með auglýsingu er í reglugerð þessari átt við hvers konar tilkynningar til almennings þar sem sýndar eru í máli eða myndum, áfengistegundir eða atriði tengd áfengisneyslu, áfengisvöruheiti eða auðkenni, eftirlíkingar á áfengisvarningi, spjöld eða annar svipaður búnaður, útstillingar, dreifing prentaðs máls og vörusýnishorna o.þ.h.

Ákvæðið tekur með sama hætti til auglýsinga sem eingöngu fela í sér firmanafn og/eða firmamerki áfengisframleiðanda. Þó er framleiðanda, sem auk áfengis framleiðir aðrar drykkjarvörur heimilt að nota firmanafn eða merki í tengslum við auglýsingu þeirra drykkja enda megi augljóst vera að um óáfenga drykki sé að ræða í skilningi áfengislaga og ekki vísað til hinnar áfengu framleiðslu.

3. gr.

Undanþegið banni við áfengisauglýsingum er:

1. Auglýsingar á erlendum tungumálum í erlendum prentritum, sem flutt eru til landsins, nema megintilgangur ritsins eða innflutningsins sé að auglýsa áfengi.

2. Auðkenni með firmanafni og/eða firmamerki á venjulegum búnaði til áfengisveitinga á veitingastað, þar sem áfengisveitingar eru heimilar.

3. Auðkenni með firmanafni og/eða firmamerki á flutningatækjum áfengisframleiðanda, vöruumbúðum, bréfsefni eða öðru sem beinlínis tengist starfsemi hans.

4. gr.

Með brot á ákvæðum reglugerðar þessarar skal farið að hætti opinberra mála. Um refsingar fer skv. áfengislögum nr. 82/1969, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 5. mgr. 16. gr. áfengislaga, nr. 82, 2. júlí 1969, öðlast þegar gildi.

Jafnframt fellur úr gildi 16. gr. reglugerðar um sölu og veitingar áfengis, nr. 335, 18. maí 1983.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 20. febrúar 1989.

Guðmundur Bjarnason.

Páll Sigurðsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.