Fara beint í efnið

Prentað þann 19. maí 2024

Breytingareglugerð

55/1996

Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 255/1993, um vörugjöld af eldsneyti, með áorðnum breytingum.

1. gr.

2. málsl. 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar
orðist svo:

Af blýlausu bensíni skal greiða gjald sem nemur 25,51 kr.
af hverjum lítra. Af öðru bensíni skal greiða gjald sem nemur 27,11 kr. af
hverjum lítra.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í
28. gr. laga nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. öðlast
gildi hinn 1. febrúar 1996 og tekur til innflutnings á bensíni sem tekið er til
tollafgreiðslu frá og með þeim degi.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þeir aðilar sem gjaldskyldir eru samkvæmt
18. gr. laga nr. 29/1993, skulu greiða bensíngjald af óseldum bensínbirgðum sem
þeir eiga þann 1. febrúar 1996, til viðbótar því bensíngjaldi sem greiða skal
samkvæmt reglugerð nr. 616/1994. Gjald þetta skal nema 0,66 kr. af hverjum
lítra af blýlausu bensíni og 0,70 kr. af hverjum lítra af öðru bensíni og skal
því skilað á sama tíma og bensíngjaldi samkvæmt reglugerð nr. 255/1993, með
áorðnum breytingum.

Hver sá, sem á eða hefur til umráða gjaldskyldar birgðir af
bensíni hinn 1. febrúar 1996, skal ótilkvaddur tilkynna það innheimtumanni
ríkissjóðs fyrir 10. febrúar 1994. Eigandi eða umráðamaður þess skal
ótilkvaddur aðstoða við að kanna birgðir óski innheimtumaður slíkrar aðstoðar.

Innheimtumaður ríkissjóðs getur krafist upplýsinga frá
innflytjendum bensíns og bensínsölum um sölu samkvæmt verslunarbókum til
viðskiptamanna er fram fór fyrir 1. febrúar 1996.

Fjármálaráðuneytinu, 22. janúar 1996.

F. h. r.

Indriði H. Þorláksson.

Guðrún Ásta Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.