Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 3. maí 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 27. jan. 1989 – 22. jan. 1993 Sjá núgildandi

37/1989

Reglugerð um greiðslur samkvæmt 38. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Þeir menn, sem njóta annarra tekna en launatekna og vilja komast hjá greiðslu verðbóta á tekjuskatt og útsvar af þessum tekjum, sbr. 121. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, skulu greiða fjárhæð sem ætla má að nægi til lúkningar væntanlegri álagningu tekjuskatts og útsvars á þessar tekjur. Greiðsla þessi skal innt af hendi eigi síðar en 31. janúar næstan á eftir staðgreiðsluári. Greiðslan skal bætast við staðgreiðslu þá sem maðurinn innti af hendi eða innt hefur verið af hendi fyrir hann, á staðgreiðsluári og færast á staðgreiðsluskrá áður en greiðslustaða hans er ákvörðuð skv. 34. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda með síðari breytingum.

2. gr.

Með greiðslu samkvæmt 1. gr. skal fylgja sérstök skilagrein þar sem fram kemur m.a. nafn og kennitala þess aðila sem greitt er fyrir ásamt upplýsingum um hvers vegna greiðslan er innt af hendi. Skilagreinar er unnt að .fá hjá skattstjórum og innheimtumönnum staðgreiðslu.

3. gr.

Maður skal skila greiðslu skv. reglugerð þessari, ásamt skilagrein í því umdæmi þar sem hann á lögheimili. Skil skal gera til gjaldheimtna þar sem þær eru starfandi en annars staðar til sýslumanns eða bæjarfógeta.

Eftirtaldir aðilar eru innheimtumenn staðgreiðslu og taka við staðgreiðslufé og skilagreinum:

Gjaldheimtur: Gjaldheimtan í Reykjavík

Gjaldheimtan í Mosfellsbæ

Gjaldheimtan á Seltjarnarnesi

Gjaldheimtan, Garðabæ

Gjaldheimta Bessastaðahrepps

Gjaldheimtan í Hafnarfirði

Gjaldheimta Suðurnesja, Njarðvík

Gjaldheimtan í Bolungarvík

Gjaldheimta Vestfjarða

Gjaldheimta Vestmannaeyja

B. Sýslumenn, bæjarfógetar:

Bæjarfógetinn á Akranesi

Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu

Sýslumaður Snæfellsness- og Hnappadalssýslu, bæjarfógetinn í Ólafsvík Sýslumaður Dalasýslu

Sýslumaður Barðastrandarsýslu

Sýslumaður Ísafjarðarsýslu, bæjarfógetinn á Ísafirði Bæjarfógetinn í Bolungarvík

Sýslumaður Strandasýslu Sýslumaður Húnavatnssýslu

Sýslumaður Skagafjarðarsýslu, bæjarfógetinn á Sauðárkróki Bæjarfógetinn á Siglufirði

Bæjarfógetinn í Ólafsfirði

Sýslumaður Eyjafjarðarsýslu, bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík Sýslumaður Þingeyjarsýslu, bæjarfógetinn á Húsavík

Sýslumaður Norður-Múlasýslu, bæjarfógetinn á Seyðisfirði Bæjarfógetinn í Neskaupstað

Sýslumaður Suður-Múlasýslu, bæjarfógetinn á Eskifirði Sýslumaður Austur-Skaftafellssýslu

Sýslumaður Vestur-Skaftafellssýslu Bæjarfógetinn í Vestmannaeyjum Sýslumaður Rangárvallasýslu

Sýslumaður Kjósarsýslu vegna Kjalarneshrepps og Kjósarhrepps Bæjarfógetinn í Kópavogi

4. gr.

Greiðsla ásamt skilagrein þarf að hafa borist innheimtumanni sem um getur í 2. mgr. 3. gr. eigi síðar en 31. janúar næstan á eftir staðgreiðsluári. Dagsetning á greiðslukvittun innheimtumanns staðgreiðslu er sönnun fyrir því að skil hafi verið gerð á réttum tíma.

Greiðslur sem berast eftir 31. janúar munu ekki verða teknar sem greiðsla samkvæmt 38. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, og verða því ekki færðar á staðgreiðsluskrá áður en greiðslustaða er ákvörðuð samkvæmt 34. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda með síðari breytingum

5. gr.

Mismunur, sem í ljós kemur á álögðum tekjuskatti manna og staðgreiðslu samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 34. gr. þeirra laga, er stafar af of hárri staðgreiðslu, skal taka hlutfallslegri breytingu sem nemur mismun á lánskjaravísitölu sem í gildi er 1. júlí á tekjuári og lánskjaravísitölu sem er í gildi 1. júlí á álagningarári. Komi í ljós að ofgreiðsla hefur myndast vegna innborgunar samkvæmt þessari reglugerð skal þó miða upphafsdag verðbótaútreiknings við 1. janúar næstan á eftir staðgreiðsluári.

6. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 41. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum og heimild í 119. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytið, 27. janúar 1989.

F. h. r.

Lárus Ögmundsson.

Snorri Olsen.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.