Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

10/2020

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 543/2013 um afhendingu og birtingu gagna á raforkumörkuðum og um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 714/2009.

1. gr.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 48 í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2017, frá 5. maí 2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 543/2013, frá 14. júní 2013, um afhendingu og birtingu gagna á raforkumörkuðum og um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 714/2009.

Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

2. gr.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2017 frá 5. maí 2017 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 11 frá 7. febrúar 2019, bls. 53 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 543/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31/2017, 18. maí 2017, bls. 609.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 45. gr. raforkulaga nr. 65/2003 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. janúar 2020.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Erla Sigríður Gestsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.