Fara beint í efnið

Ráðstöfunarfé vegna dvalar á stofnun

Ráðstöfunarfé

Ráðstöfunarfé er ætlað að mæta öðrum kostnaði en kostnaði vegna dvalar á stofnun fyrir lífeyrisþega.

Upphæðin er 100.020 krónur á mánuði fyrir skatt.

Upphæðin er tekjutengd og útreikningur byggir á fyrirliggjandi tekjuáætlun hjá TR.

Athugið að aðeins lífeyrisþegar í afplánun þurfa að sækja um ráðstöfunarfé. Hjá öðrum sem eiga rétt á ráðstöfunarfé kemur það sjálfkrafa.

Almennar upplýsingar

Ráðstöfunarfé er tekjutengt og hafa eftirfarandi tekjur áhrif á upphæðina:

  • atvinnutekjur,

  • lífeyrissjóðstekjur,

  • fjármagnstekjur þínar og maka þíns,

Greiðslur falla niður þegar tekjur ná 153.877 krónur á mánuði fyrir skatt.

Tekjur sem hafa ekki áhrif á upphæðina eru til dæmis:

  • úttekt viðbótarlífeyrissparnaðar,

  • greiðslur frá félagsmálastofnun,

  • greiðslur frá sveitarfélögum.

Í uppgjöri TR á hverju vori er ráðstöfunarfé fyrra árs endurreiknað út frá staðfestu skattframtali líkt og aðrar lífeyrisgreiðslur. Því skiptir miklu máli að tekjuáætlun þín sé rétt.

Ráðstöfunarfé

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun