Fara beint í efnið

Öryggishandbók fiskiskipa

Öryggishandbók fiskiskipa er hluti af öryggisstjórnunarkerfi fyrir fiskiskip sem byggð er á ISM staðlinum. Tilgangur handbókarinnar er að stuðla að öryggi skips, áhafnar og farþega og að hindra það að rekstur skips valdi spjöllum á umhverfi

  • Handbókin er grunnskjal öryggisstjórnunarkerfisins og aðlaga skal bókina að hverju skipi fyrir sig og nýtist fyrir stór og lítil skip

  • Dæmi um uppsetningar í köflum eru í grænum texta í handbókinni sem skal aðlaga að hverri útgerð/skipi fyrir sig.

  • Einnig má aðlaga forsíðuna að hverju skipi fyrir sig, skipta út heiti, merki og öðru.

Til viðbótar við handbókina geta útgerðir nýtt sér Safety Folder, breskt kerfi sem er aðgengilegt öllum að kostnaðarlausu á vefsíðunni þar er haldið utan um áhættumöt, vinnuleiðbeiningar, öryggisbúnað og fleira

Unnið er að frekari aðlögun Safety Folder fyrir íslensk fiskiskip.

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa