Fara beint í efnið

Drónareglur - Opni flokkurinn

Opni flokkurinn inniheldur áhættulitla starfsemi dróna sem vega minna en 25 kg.

Kröfur:

  • Dróninn verður að vega minna en 25 kg

  • Fjarflugmaðurinn verður að hafa drónann ávallt í augsýn (VLOS)

  • Dróninn má ekki fljúga hærra en 120 m frá jörðu

  • Það má ekki fljúga yfir mannfjölda

  • Það má ekki fljúga með hættulegan varning

  • Það má ekki sleppa hlutum af drónanum

  • Dróninn verður að vera merktur með skráningarnúmeri umráðanda

Undirflokkar

Opna flokknum er skipt í þrjá undirflokka: A1, A2 og A3.

  • A1 – Leyfilegt að fljúga léttum drónum með minni takmörkunum á fjarlægð frá óviðkomandi fólki.

  • A2 – Leyfilegt að fljúga drónum í þéttbýli með 50 m lágmarksfjarlægð frá óviðkomandi fólki (30 m með C2 merktum dróna, 5 m með hægflugsbúnaði).

  • A3 – Leyfilegt að fljúga drónum allt að 25 kg að þyngd, með 150 m lágmarksfjarlægð frá byggðum svæðum.

Opni flokkurinn

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa