Fara beint í efnið

Stafrænt ökuskírteini

Sækja stafrænt ökuskírteini

Sækja í Android-síma

Hægt er að sækja stafrænt ökuskírteini á Mínum síðum á Ísland.is eða með Ísland.is appinu:

Með Ísland.is appinu:

  1. Byrjaðu á því að sækja veskisappið Smartwallet

  2. Þú sækir Ísland.is appið á Google Play

  3. Skráir þig inn í appið með rafrænum skilríkjum

  4. Velur 'Skírteini' í appinu

  5. Smellir á ökuskírteinið

  6. Ýtir á 'Add to Wallet' neðst á skjánum

Þá er skírteini bætt í SmartWallet. Nánar á island.is/app

Á Mínum síðum:

  1. Byrjaðu á því að sækja veskisappið Smartwallet

  2. Veldu "Sækja" (blár hnappur hér að ofan) og skráðu þig inn í umsóknina með rafrænum skilríkjum

  3. Veldu "Senda í síma"

  4. Skannaðu QR kóðann með myndavélinni í símanum

  5. Veldu "Sækja skrá"

  6. Veldu "Leyfa"

  7. Veldu "Bæta við"

Þá er skírteini bætt í SmartWallet.

Færðu villu við umsókn?

Ef þú færð villu þegar þú hefur lokið umsókninni er það vegna þess að upplýsingar vantar í ökuskírteinagrunn, t.d. mynd. Líklega ert þú með gamalt ökuskírteini á pappír, gefið út fyrir 1998, en ekki nýrri plastkortin. Best er að hafa samband við sýslumann á þínu svæði til að endurnýja ökuskírteinið og fá nýju útgáfuna.

Við það opnast möguleikinn á að fá stafrænt ökuskírteini.

Sækja stafrænt ökuskírteini

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15