Ökunám, leiðin að bílprófinu
Ökunám til bílprófs getur hafist við 16 ára aldur.
Ökunámið skiptist í
bóklegt nám í samtals um 25 kennslustundir (Ökuskóli 1, 2 og 3)
ökutíma með ökukennara í 17-25 kennslustundir
Ökuskírteini er í fyrsta lagi gefið út á 17 ára afmælisdegi viðkomandi.
Ferli ökunáms
Kostnaður
Það má gera ráð fyrir töluverðum kostnaði við ökunámið og ökuprófið. Meðal annars þarf að greiða fyrir
námsheimild sem sækja þarf um til sýslumanns
námskeið í ökuskóla
ökutíma með ökukennara, fjöldi fer eftir þörfum ökunema
kennslubók og verkefni
myndir vegna skírteinis
prófgjöld
Hvað felst í almennum ökuréttindum
Almenn ökuréttindi gefa rétt til að aka fólks- eða sendibifreið sem er
ekki þyngri en 3.500 kg
með sæti fyrir mest 8 farþega auk ökumanns
með tengdan eftirvagn eða tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd
með tengdan eftivagn sem er meiri en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, en þá má leyfð heildarþyngd beggja ökutækja ekki vera meiri en 3.500 kg samtals
Ennfremur máttu aka
léttu bifhjóli (skellinöðru)
bifhjóli á þremur eða fleiri hjólum
torfærutæki t.d. vélsleða
dráttarvél
vinnuvél í umferð, en þó ekki vinna á hana nema þú hafir vinnuvélaréttindi
Sá sem er yngri en 21 árs má þó ekki stjórna bifhjóli á þremur hjólum sem er aflmeira en 15 kW.
Skipta um ökukennara
Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að skipta þarf um ökukennara. Til dæmis flutningar á milli landshluta og fleira. Ökunemi skráir breytinguna í gegnum Ísland.is.
Mat á ókláruðu námi frá öðrum löndum
Bóklegt nám sem tekið hefur verið í öðru landi en á Íslandi er ekki metið milli landa. Þeir sem ætla að öðlast ökuréttindi á Íslandi þurfa að klára Ökuskóla 1, 2 og 3 á Íslandi.
Fatlað fólk
Ef fatlað fólk hefur næga hreyfigetu til að geta stjórnað bíl af öryggi með hjálpartækjum þá er mögulegt að öðlast ökuréttindi. Slíkt er þó háð mati læknis og annarra sem athuga hvernig hjálpartæki vinna í stjórn bílsins.
Ökunám - algengar spurningar

Þjónustuaðili
Samgöngustofa