Fara beint í efnið

Öryggi við notkun hlaupahjóla, hjólabretta og línuskauta

Öryggisbúnaður

Ráðlagt er að nota öryggis- og hlífðarbúnað, líkt og hjálm og hlífar á olnboga, úlnlið og hné, þegar ferðast er í umferðinni á:

  • hlaupahjóli

  • hjólabretti

  • línuskautum

  • öðrum leiktækjum

Mikilvægt að fara eftir umferðarreglum fyrir gangandi vegfarendur, því slys á hlaupahjóli, hjólabretti, línuskautum og öðrum leiktækjum í umferðinni eru nokkuð algeng og áverkarnir geta verið alvarlegir. Til að minnka líkur á slysum þarf að:

  • fræða vegfarendur um mikilvægi þess að nota ávallt réttan öryggisbúnað

  • fylgjast með ástandi leiktækja, því mörg slys má rekja til bilunar í leiktæki

Vegfarendur á hlaupahjóli, hjólabretti eða línuskautum skulu

  • nota gangstétt eða gangstíg

  • halda sig hægra megin og fara fram úr öðrum vinstra megin

  • taka tillit til gangandi vegfarenda og víkja fyrir þeim

  • nota yfirborð með sléttu undirlagi, þar sem er ekki umferð

  • ekki að vera á akbrautum

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa