Fara beint í efnið

Öryggi gangandi vegfarenda

Gangandi vegfarendur skulu nota

  • gangstétt eða gangstíg

  • þann hluta vegar sem liggur utan akbrautar

  • vegbrúnina, vinstra megin á móti umferð og aldrei fleiri en tveir vegfarendur samhliða

Gangandi vegfarandi sem leiðir reiðhjól eða létt bifhjól

  • skal ganga við hægri vegbrún

  • má nota gagnstæða vegarbrún vegna hættu eða sérstakra aðstæðna

Gengið yfir akbraut eða hjólastíg

Sérstaka aðgát skal sýna gagnvart ökutækjum sem nálgast. Best er að nota:

  • gangbraut eða aðra gönguþverun ef hún er nálæg

  • göng og brú fyrir gangandi vegfarendur

  • annars að ganga þvert yfir akbraut og sem næst vegamótum

Þar sem umferð er stjórnað af lögreglu eða með umferðarljósum má einungis ganga yfir akbraut þegar

  • grænt ljós er fyrir umferð gangandi vegfarenda

  • lögreglan gefur til kynna með merkjagjöf að umferð gangandi sé heimil

Umferð á gangstígum

Allir vegfarendur á stígum og gangstéttum ættu að miða við að

  • í gildi sé hægri umferð

  • að taka eigi fram úr vinstra megin

Þar sem yfirborðsmerkingar aðgreina stíga fyrir gangandi og hjólandi, borgar sig að virða þær merkingar.

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa