Fara beint í efnið

Væntanlegar nýjar reglur um drónaflug

Skráning drónaflugmanna

Nýjar reglur Evrópusambandsins um flug ómannaðra loftfara (dróna) hafa tekið gildi innan aðildarlanda sambandsins. Þessar reglur hafa ekki tekið gildi hér á Íslandi, en búist er við að þær verði innleiddar á næstu misserum. Ólíkt núgildandi reglugerð (990/2017) þar sem einungis þarf að skrá dróna sem notaðir eru í atvinnuskyni, munu eigendur dróna þurfa að skrá sig samkvæmt nýja regluverkinu og gerðar eru vissar kröfur um þjálfun fjarflugmanna. 

  • Eigendur dróna þurfa að skrá sig á flydrone.is og greiða skráningargjald.

  • Skráningin gildir í 5 ár.

  • Hægt verður að þreyta próf á netinu í undirflokki A1/A3 án endurgjalds.

  • Einnig verður hægt að taka próf í undirflokki A2, en það próf verður að fara fram í húsakynnum Samgöngustofu eða hjá aðilum sem stofnunin hefur samþykkt.

Hægt er að finna nánari upplýsingar um evrópsku drónareglugerðina á heimasíðu EASA

Skráning drónaflugmanna

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa