Fara beint í efnið

Nýbyggingalán

Umsókn um nýbyggingalán

Sækja um nýbyggingalán

Þú sækir um nýbyggingalán á Mínum síðum HMS. Þar skráirðu inn upplýsingar um þig, viðgerðirnar og hvers konar lán þú vilt taka.

  • Hægt er að sækja um lán í 5 ár eftir að eign er fokheld.

  • Hægt er að sækja um lán í allt að 1 ár eftir að eign er fullbúin og komin með endanlegt brunabótamat.

  • Það er hægt að sækja um undanþágu frá tímaskilyrðum ef um sérstakar aðstæður er að ræða.

Fylgigögn

Með umsókninni þarf að fylgja:

  • Fjármögnunar- og verkáætlun.

  • Kostnaðaráætlun miðað við fullgerða eign.

  • Staðfesting á smíðatryggingu.

  • Álagningarseðill síðustu skattaskýrslu.

  • Ef lánið er viðbótarlán við lán hjá annarri lánastofnun þarf staðfestingu á stöðu og lánskjörum grunnláns.

Ef eignin er keypt í smíðum:

  • Söluyfirlit.

  • Samþykkt og undirritað kauptilboð.

  • Staðfesting á eigin fé, til dæmis með bankayfirliti.

Næstu skref

Í framhaldi af umsókninni er þér beint í greiðslumat hjá CreditInfo til að kanna lánshæfi.

Þú færð staðfestingarpóst þegar umsóknin hefur verið send inn. Ráðgjafi mun hafa samband innan 3 virkra daga. Ef beðið er um viðbótargögn er mikilvægt að senda þau innan frests sem er gefinn, annars fellur umsóknin úr gildi.

Þú getur alltaf fylgst með stöðu umsóknar á Mínum síðum HMS.

Lán samþykkt

Lánið er greitt út í áföngum.

  1. Við fokheldi (byggingarstig 4).

    Lánað er allt að 80% af byggingarkostnaði hingað til.

  2. Við brunabótamat (byggingarstig 7).

    Viðbótarlán upp í 80% af heildar byggingarkostnaði eða markaðsvirði (lægri upphæð gildir).

  3. Um leið og lánsumsókn er samþykkt og viðeigandi áfanga náð er lán sent í skjalagerð. Það tekur vanalega 1–3 virka daga.

  4. Þegar lánaskjölin eru tilbúin getur þú sótt þau á afgreiðslutíma til HMS í Borgartúni 21 og farið með í þinglýsingu ásamt kaupsamningi.

  5. Þegar kaupsamningi hefur verið þinglýst getur þú sent eða farið með lánaskjölin aftur til HMS.

Fyrsti vaxtadagur er 5 dögum frá kaupdegi láns. Fyrsta afborgun af láni er fyrsta dag annars mánaðar eftir það.

Dæmi: Fyrsti vaxtadagur er 10. janúar. Fyrsta afborgun af láni er 1. mars.

Þú getur fylgst með stöðu láns og greitt inn á það á Mínum síðum HMS.

Láni synjað

Ef lánsumsókn er synjað færðu tölvupóst með formlegu ákvörðunarbréfi með ástæðum synjunar. Ef einhver gögn vantaði eða forsendur hafa breyst getur þú sótt um endurupptöku og veitt nýjar upplýsingar.

Ef þú ert ósammála niðurstöðunni getur þú kært hana til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Umsókn um nýbyggingalán