Fara beint í efnið

Landsbyggðarlán til byggingar á svæðum þar sem erfitt er að fá fjármögnun

Umsókn um landsbyggðarlán

Sækja um landsbyggðarlán

Þú sækir um landsbyggðarlán á Mínum síðum HMS. Þar skráirðu inn upplýsingar um þig, áætlaðan byggingarkostnað og hvers konar lán þú vilt taka.

  • Það er hægt að sækja um lán í 5 ár eftir að eign er fokheld.

  • Það er hægt að sækja um lán í allt að 1 ár eftir að eign er fullbúin og komin með endanlegt brunabótamat.

  • Það er hægt að sækja um undanþágu frá tímaskilyrðum ef um sérstakar aðstæður er að ræða.

Fylgigögn

Með umsókninni þarf að fylgja:

  • Fjármögnunar- og verkáætlun.

  • Kostnaðaráætlun miðað við fullgerða eign.

  • Staðfesting á smíðatryggingu.

  • Staðfesting á synjun annarra lánastofnanna.

  • Staðfesting á þörf húsnæðis.

  • Álagningarseðill síðustu skattaskýrslu.

Næstu skref

Í framhaldi af umsókninni er þér beint í greiðslumat hjá CreditInfo til að kanna lánshæfi.

Þú færð staðfestingarpóst þegar umsóknin hefur verið send inn. Ráðgjafi mun hafa samband innan 3 virkra daga. Ef beðið er um viðbótargögn er mikilvægt að senda þau innan frestsins sem er gefinn, annars fellur umsóknin úr gildi.

Þú getur alltaf fylgst með stöðu umsóknar á Mínum síðum HMS.

Lán samþykkt

Lánið er greitt út í áföngum.

  1. Við fokheldi (byggingarstig 4). Lánað er allt að 80% af byggingarkostnaði hingað til.

  2. Við brunabótamat (byggingarstig 7). Viðbótarlán upp í 80% af heildar byggingarkostnaði eða markaðsvirði (lægri upphæð gildir).

  3. Um leið og lánsumsókn er samþykkt og viðeigandi áfanga náð er lán sent í skjalagerð. Það tekur vanalega 1–3 virka daga.

  4. Þegar lánaskjölin eru tilbúin getur þú sótt þau á afgreiðslutíma til HMS í Borgartúni 21 og farið með í þinglýsingu ásamt kaupsamningi.

  5. Þegar kaupsamningi hefur verið þinglýst getur þú sent eða farið með lánaskjölin aftur til HMS.

Fyrsti vaxtadagur er 5 dögum frá kaupdegi láns. Fyrsta afborgun af láni er fyrsta dag annars mánaðar eftir það.

Dæmi: Fyrsti vaxtadagur er 10. janúar. Fyrsta afborgun af láni er 1. mars.

Þú getur fylgst með stöðu láns og greitt inn á það á Mínum síðum HMS.

Láni synjað

Ef lánsumsókn er synjað færðu tölvupóst með formlegu ákvörðunarbréfi með ástæðum synjunar. Ef einhver gögn vantaði eða forsendur hafa breyst getur þú sótt um endurupptöku og veitt nýjar upplýsingar.

Ef þú ert ósammála niðurstöðunni getur þú kært hana til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Umsókn um landsbyggðarlán