Fara beint í efnið

Kúfskelveiðileyfi

Umsókn um veiðileyfi - einyrkjar & prókúruhafar

Sótt er um leyfi til veiða á kúfskel fyrir hvert fiskveiðiár.  Þeir bátar sem veiða kúfskel til manneldis er heimilt að veiða með plóg. 

Krókaaflamarksbátum er heimilt að veiða kúfskel til beitu. 

Við vigtun og skráningu á kúfskel gilda ákvæði reglugerðar um vigtun og skráningu sjávarafla og reglugerðar um afladagbækur.

Skilyrði

  • Samningur um vinnslu þarf að liggja fyrir eða jafngild yfirlýsing þegar um eigin vinnslu er að ræða.

  • Staðfesting frá MAST um gilt vinnsluleyfi.

  • Veiðar eru einungis leyfðar á svæðum sem hafa verið heilnæmiskönnuð af MAST.

Greitt er með greiðslukorti í umsóknarferli og kostar leyfið 22.000 krónur

Umsókn um veiðileyfi - einyrkjar & prókúruhafar

Þjónustuaðili

Fiski­stofa