Fara beint í efnið

Kaup á nýsköpun fyrir opinbera aðila

Nýsköpun felur í sér breytingar á aðferðum, ferlum, rekstri og öðru skipulagi sem leiðir til skilvirkari og hagkvæmari þjónustu. Þegar kaupandi þarf nýja lausn eða endurbæta það sem er þegar til staðar gæti nýsköpun verið það besta í stöðunni. Dæmi um nýsköpun:

  • Þróun vöru, nýrrar eða verulega bættrar.

  • Þróun þjónustu eða ferlis, til dæmis við framleiðsluferli eða byggingarferli.

  • Þróun aðferða, í til dæmis markaðssetningu og viðskiptum.

  • Þróun breytinga á þjónustu og upplýsingagjöf, til dæmis í þeim tilgangi að hjálpa til við að takast á við samfélagsleg verkefni.

Kaupin

Kaupandi þarf að gera greiningu. Í henni felst gerð innkaupagreiningar og áætlanagerðar. Greiningarvinnan getur leitt í ljós að lausnin sé nú þegar til eða að það þurfi að þróa nýja lausn. Það getur líka komið í ljós að kaupin séu útboðsskyld.

Sérfræðingar Ríkiskaupa veita kaupendum ráðgjöf varðandi öll fyrirhuguð innkaup á nýsköpun.

Kaupandi veit hvernig lausn hann þarf

  1. Kaupandi sendir inn verkbeiðni á Ríkiskaup með þarfalýsingu.

  2. Innkaup undirbúin og framkvæmd í samstarfi við Ríkiskaup samkvæmt innkaupaferli.

Kaupandi óviss hvernig lausn hann þarf

  1. Kaupandi sendir inn áskorun á vefinn Opinber nýsköpun með stuttri þarfalýsingu.

  2. Ríkiskaup birtir áskorunina á vefnum opinbernyskopun.is og tengir kaupanda við seljendur.

  3. Samtal á sér stað milli kaupanda og markaðarins um lausnir, þróun og útfærslur.

  4. Kaupandi fullmótar þarfalýsingu og tæknilýsingu.

  5. Innkaup eru undirbúin og framkvæmd í samráði við Ríkiskaup.

Eru kaupin útboðsskyld?

Ef kostnaðurinn er yfir viðmiðunarfjárhæðum eru kaupin útboðsskyld. Þá er hægt að fara í gegnum almennt innkaupaferli Ríkiskaupa með ákveðnum frávikum:

Skilyrði

Ákveðnir þættir þurfa að vera til staðar hjá opinberum aðilum svo að kaup á nýsköpun verði markviss og skili þeim árangri sem til er ætlast.

  • Skilningur og samþykki á meginreglum opinberra innkaupa um gagnsæi, sanngirni, hagkvæmni og jafnræði.

  • Stuðningur æðstu stjórnenda.

  • Skýr stefna um fyrirkomulag og nýtingu stjórnunar, lagalegra þátta, innkaupa, upplýsingatækni og fleira.

  • Möguleiki á að leita ráðgjafar til að móta þörfina, lausnina og sinna viðskiptaþróun ásamt mögulegri fjármögnun.

Kostir þess að kaupa nýsköpun

Það er ekki gerð krafa um fjárhagslega ávöxtun af kaupum á nýsköpun hjá opinberum aðilum eins og þekkist á einkamarkaði. Þess í stað eru jákvæð áhrif innkaupanna á rekstur og þjónustu mælikvarðinn á árangurinn.

Betri opinber þjónusta

Hið opinbera á auðveldara með að nýta sér tækniframfarir tímanlega með kaupum á nýsköpun. Þannig geta stofnanir og aðrir opinberir aðilar mætt vaxandi kröfum um nútímalegri þjónustu á skilvirkari hátt en með hefðbundnum leiðum.

Hagkvæmari kostur

Þó nýjum lausnum fylgi kostnaður við innleiðingu er mikilvægt að meta ávinning sem lausnir bera með sér, á borð við skilvirkari starfsemi og sjálfvirkni ferla.

Stöðug framþróun

Með jákvæðu viðhorfi gagnvart kaupum á nýsköpun getur hið opinbera komið í veg fyrir stöðnun og sett mikilvæg fordæmi á markaði.

Aukin samkeppni

Með því að beina opinberum innkaupum að nýskapandi lausnum opnar hið opinbera á aðkomu fleiri og fjölbreyttari fyrirtækja að opinberum innkaupaferlum.

Lesa meira:

Lög um opinber innkaup, sjá 46. grein.

Þjónustuaðili

Ríkis­kaup

Ríkiskaup

Hafðu samband

Sími: 530 1400

Netfang: rikiskaup@rikiskaup.is

Afgreiðslu­tími

Alla virka daga frá klukkan 9 til 15.

Heim­il­is­fang

Borgartúni 26, 7. hæð,
105 Reykjavík

Kennitala: 660169-4749