Fara beint í efnið

Innheimtuferli vegna greiðslna af lánum

Ef þú getur ekki greitt mánaðarlegar greiðslur af láni fer innheimtuferli af stað og dráttarvextir og viðbótarkostnaður leggst á skuldina. Kostnaður við innheimtu vex eftir því sem krafan fer lengra í innheimtuferlinu. Dráttarvextir reiknast frá og með gjalddaga og fram að greiðsludegi. Gjöld fyrir greiðsluseðla, áminningar og viðvaranir leggjast á hvert lán.

Þú getur óskað eftir greiðslusamningi til að greiða niður vanskil ef innheimta er ekki komin í beiðni um nauðungarsölu hjá sýslumanni. Einnig eru lausnir á tímabundnum greiðsluvanda í boði.

  1. Greiðsluseðill

    • Þú færð greiðsluseðil í netbanka mánaðarlega, ársfjórðungslega eða árlega. Eindagi er alltaf 3 dögum eftir gjalddaga.

    • Gjald fyrir rafrænan greiðsluseðil er 150 krónur

    • Gjald fyrir heimsendan greiðsluseðil er 280 krónur.

  2. Áminning

    • Áminningarbréf er sent með bréfpósti 10 dögum eftir gjalddaga.

    • Gjald er 1.050 krónur.

  3. Innheimtuviðvörun

    • Ef greiðsluseðill hefur ekki verið greiddur 30 dögum eftir gjalddaga færðu senda innheimtuviðvörun með bréfpósti.

    • Gjald er 1.050 krónur.

  4. Lokaviðvörun

    • Ef greiðsluseðill hefur ekki verið greiddur 50 dögum eftir gjalddaga færðu senda lokaviðvörun með bréfpósti.

    • Gjald er 1.050 krónur.

  5. Greiðsluáskorun

    • Ef ekki hefur verið greitt 75 dögum (2 og hálfum mánuði) eftir elsta ógreidda gjalddaga er send út greiðsluáskorun. Stefnuvottur eða póstmaður afhendir þinglýstum eiganda greiðsluáskorun.

    • Í kjölfar birtingar er HMS heimilt að skrá þig á vanskilaskrá hjá Creditinfo. Þú þarft að greiða alla gjalddaga sem tilgreindir eru í greiðsluáskorun til að hægt sé að afskrá þig af vanskilaskrá.

    • Gjald er 8.100 krónur. Að auki er birtingarkostnaður sem ræðst af gjaldskrá Póstsins.

    • Ef lángreiðandi er með skráð lögheimili erlendis er málið sent í lögfræðiinnheimtu til Lögheimtunnar og kostnaður samkvæmt gjaldskrá Lögheimtunnar. Nánari upplýsingar á www.motus.is

  6. Nauðungarsölubeiðni

    • Ef ekki hefur verið greitt af láni innan 15 daga frá birtingu greiðsluáskorunar og 105 dagar eru liðnir frá fyrsta ógreidda gjalddaga er send beiðni um nauðungarsölu á eigninni til sýslumanns. Sjá nánar um frestun eða afturköllun á nauðungarsölu.

    • Gjald er 3.500 krónur+vsk. Að auki er nauðungarsölugjald til ríkissjóðs 40.000 krónur.

  7. Fyrirtaka hjá sýslumanni

    • Fyrsta fyrirtaka fer fram hjá sýslumanni 1 til 3 mánuðum frá móttöku nauðungarsölubeiðni. Fyrsta fyrirtaka fer fram á skrifstofu sýslumanns sem ákveður hvenær byrjun uppboðs fer fram.

    • Sýslumaður sendir þér tilkynningu um fyrirtökuna.

    • Fyrsta fyrirtaka er auglýst í Lögbirtingarblaði.

  8. Byrjun uppboðs

    • Við byrjun uppboðs er leitað eftir boðum í eignina og sýslumaður ákveður tímasetningu á framhaldssölu eignar. Byrjun uppboðs fer fram á skrifstofu sýslumanns og sýslumaður sendir þinglýstum eiganda tilkynningu um byrjun uppboðs.

    • Byrjun uppboðs er auglýst í dagblöðum og á vef sýslumanns.

  9. Framhald uppboðs

    • Innan 4 vikna frá byrjun uppboðs verður framhald. Framhald uppboðs er lokasala á eigninni sjálfri. Sýslumaður sendir þinglýstum eiganda tilkynningu um framhaldssölu.

    • Framhald uppboðs er auglýst í dagblöðum og á vef sýslumanns.

    • Þinglýstur eigandi getur mætt og farið fram á auka samþykkisfrest og óskað eftir að leigja eignina.

    • Sjá nánari upplýsingar um nauðungarsölur á vef sýslumanna.

  10. Nauðungarsala

    • Eignin er seld upp í skuldina. Ef markaðsvirði er lægra en skuldin verður til eftirstæð krafa án veðs.

    • Á meðan krafan stendur getur þú ekki fengið lán hjá HMS. Sumar aðrar lánastofnanir veita lán þrátt fyrir veðlausa kröfu.

    • Fyrir hverja krónu sem þú greiðir inn á kröfuna fellur niður króna. Dæmi: Þú borgar 100.000 krónur og HMS lækkar um 100.000 krónur á móti.

    • Eftir 3 ár getur þú sótt um niðurfellingu á eftirstæðri kröfu.