Fara beint í efnið

Innflutningur skipa og báta í atvinnurekstri

Umsókn um yfirferð og samþykkt smíðalýsinga, teikninga og annarra gagna

Upplýsa þarf Samgöngustofu um fyrirhugaðan innflutning á skipum og bátum sem er keypt eða leigt frá útlöndum til skráningar hér á landi.

Senda þarf á Samgöngustofu teikningar og önnur gögn til umsagnar og samþykktar áður en skip er flutt inn.

Skipin þurfa að:

  • vera smíðuð í samræmi við reglur viðurkennds flokkunarfélags um flokkuð skip eða sambærilegar reglur.

  • fullnægja skilyrðum íslenskra laga og reglugerða um styrkleika, búnað og haffæri.

Umsóknarferlið

Samþykktarferli vegna innflutnings á skipi og þar til leyfilegt er að sigla á því er eftirfarandi:

  1. Tæknileg gögn - Tilkynna þarf Samgöngustofu um innflutning á skipi og senda inn tæknileg gögn til samþykktar.

  2. Stöðugleiki - Samþykkja þarf stöðugleikagögn fyrir skipið og framkvæma hallaprófun fyrir öll skip önnur en opna báta undir 15 metrum mestu lengdar.

  3. Mæling skips - Framkvæma þarf mælingar til að staðfesta skipslengdir eins og skráningarlengd, mesta lengd og brúttótonnaútreikninga.

  4. Upphafsskoðun - Framkvæma þarf upphafsskoðun, á skipinu áður en það er tekið í notkun. Þetta felur í sér skoðun á öllum atriðum, sem tengjast þeirri notkun sem skipinu er ætlað.

  5. Skráning á skipaskrá - Nýskrá skal öll innflutt skip á skipaskrá og að lokinni og staðinni upphafsskoðun er hægt að skrá skipið á skipaskrá.

  6. Útgáfa skírteina - Þegar skip hefur staðist allar nauðsynlegar skoðanir er hægt að gefa út haffærisskírteini og önnur skipsskírteina tengdum rekstri skips. Skip má ekki fara í rekstur fyrr en haffærisskírteini hefur verið útgefið.

Kostnaður

  • Vegna innflutnings á skipum greiðist tímagjald a. í samræmi við gjaldskrá Samgöngustofu sem birt er á síðunni gjaldskrá Samgöngustofu

  • Ferðakostnaður - þurfi starfsmaður samgöngustofu að ferðast vegna vinnu í tengslum við samþykkt á skipum. Ferðakostaður skal greiddur í samræmi við gjaldskrá Samgöngustofu

  • Fast gjald skal greitt af skírteinum í samræmi við gjaldskrá Samgöngustofu

Lög og reglugerðir
  • Skipalög nr. 66/2021.

  • Reglugerð nr. 122/2004 um öryggi fiskiskipa

  • Reglugerð nr. 592/1994 um smíði, hönnun og búnað skipa

  • Reglugerð nr. 666/2001 um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum.

  • Reglugerð nr. 466/2023 um skoðanir á skipum og búnaði þeirra.

  • Reglugerð nr. 189/1994 um björgunar og öryggisbúnað íslenskra skipa.

Umsókn um yfirferð og samþykkt smíðalýsinga, teikninga og annarra gagna

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa

Ábyrgðaraðili

Samgöngu­stofa