Fara beint í efnið

Íbúðalán HMS

Umsókn um íbúðalán

Lánakjör

  • Grunnlán með vaxtaendurskoðun er allt að 70% af verði.

  • Hægt er að fá viðbótarlán upp í 80% af verði.

  • Grunnlán með föstum vöxtum allan lánstímann er allt að 80% af verði.

Verð er miðað við lægri upphæð af kaupverði eða markaðsvirði.

Grunnlán kallast 1. veðréttur og viðbótarlán 2. veðréttur. Viðbótarlán eru almennt með hærri vöxtum.

Sjá vaxtatöflu lána

Óverðtryggð lán

Óverðtryggð lán eru með hærri mánaðarlegar greiðslur en verðtryggð. Óverðtryggð lán hækka ekki með verðbólgu þannig að eignamyndun er hraðari.

Fastir vextir í 3 ár í senn

  • Lánstími að 25 árum.

  • Grunnlán fyrir allt að 70%.

  • Viðbótarlán fyrir ****71–80%.

  • Viðbótarlán við aðra lánastofnun fyrir 50–80%.

Verðtryggð lán

Verðtryggð lán eru með lægri mánaðarlegar greiðslur en óverðtryggð. Þau eru tengd verðbólgu þannig að höfuðstóllinn getur hækkað í upphafi. Það gerir eignamyndun hægari.

Fastir vextir í 5 ár í senn

  • Lánstími að 40 árum.

  • Grunnlán fyrir allt að 70%.

  • Viðbótarlán fyrir ****71–80%.

  • Viðbótarlán við aðra lánastofnun fyrir 50–80%.

Fastir vextir út lánstímann

  • Lánstími að 35 árum.

  • Grunnlán fyrir allt að 80%.

  • Viðbótarlán við aðra lánastofnun fyrir allt að 80%.

Blönduð lán

Þú getur líka blandað saman lánategundum. Til dæmis er hægt að skipta láni til helminga í verðtryggt og óverðtryggt eða taka verðtryggt grunnlán og síðan óverðtryggt viðbótarlán.

Umsókn um íbúðalán