Fara beint í efnið

Höfðaborgarsamningurinn (IDERA)

Ísland er aðili að Höfðaborgarsamningnum um alþjóðleg tryggingarréttindi í hreyfanlegum búnaði ásamt bókun um búnað loftfara.

Óafturkræf heimild til að biðja um afskráningu og útflutning (IDERA)

Í samningi um alþjóðleg tryggingarréttindi í hreyfanlegum búnaði er kveðið á um heimild skuldara til að gefa út til þriðja aðila heimild til að óska eftir afskráningu loftfars af loftfaraskrá (IDERA). 

  • Skráður eigandi loftfars getur óskað eftir IDERA-skráningu í loftfaraskrá. Skila þarf viðeigandi IDERA-eyðublaði til Samgöngustofu í tvíriti. 

  • Eyðublaðið skal vera undirritað með bleki af skráðum eiganda loftfars. 

  • Samgöngustofa fer yfir beiðni um IDERA-skráningu og ef gögn reynast viðunandi er IDERA skráð í loftfaraskrá Samgöngustofu í tengslum við viðkomandi loftfar.

  • Ófullnægjandi gögn verða ekki afgreidd og þeim skilað til skráðs eiganda á hans eigin ábyrgð. Ef lögmaður kemur fram fyrir hönd skráðs eiganda mun samskiptum beint til lögmannsins. 

  • Tryggja skal að skráningargögn séu að formi og efni þannig að Samgöngustofa getur viðurkennt.

  • Staðfesting á fullnægjandi IDERA-skráningu mun afhent þeim sem fær heimild til afskráningar á grundvelli hennar eða lögmanni sem kemur fram fyrir hans hönd.

  • Gjald er tekið fyrir IDERA-skráningu samkvæmt gjaldskrá Samgöngustofu.

Afturköllun IDERA

IDERA-skráning hjá Samgöngustofu verður eingöngu afmáð úr loftfaraskrá gegn skriflegu samþykki þess sem hefur heimild til afskráningar samkvæmt skráðu IDERA.

Lög og reglur

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa