Fara beint í efnið

Tekjumörk fyrir 20% hlutdeildarláni

Þú þarft að standast greiðslumat fyrir 75% lán til 25 ára (ef lánið er óverðtryggt má lánstími vera lengri). Mánaðarleg afborgun af íbúðarláni má ekki fara yfir 40% af ráðstöfunartekjum.

Heildartekjur síðustu 12 mánuði

Einstaklingur

8.748.000 kr.

Hjón og sambúðarfólk

12.219.000 kr.


Fyrir hvert barn á heimilinu undir 20 ára aldri hækka tekjumörkin um 1.805.000 krónur.

Tekjumörk fyrir 30% hlutdeildarláni

Þú þarft að standast greiðslumat fyrir 65% láni til 25 ára (ef lánið er óverðtryggt má lánstími vera lengri). Hlutfall hlutdeildarláns fer samt eftir eigin fé og greiðslugetu, til dæmis ef þú hefur greiðslugetu til að fá 75% lán færðu ekki hærra en 20% hlutdeildarlán.

Heildartekjur síðustu 12 mánuði

Einstaklingur

5.807.000 kr.

Hjón og sambúðarfólk

8.123.000 kr.

Fyrir hvert barn á heimilinu undir 20 ára aldri hækka tekjumörkin um 1.805.000 krónur.