Fara beint í efnið

Halda íslenskum almannatryggingum vegna vinnu erlendis - A1

Aðild að íslenskri tryggingavernd (.pdf)

Á þessari síðu

Vinna í EES-landi

Skilyrðin eru ólík eftir því hvort þú er launþegi eða sjálfstætt starfandi.

Launþegi

Þú er tryggður af íslenska almannatryggingakerfinu, ef íslenskur vinnuveitandi sendir þig til EES-lands í vinnu í allt að 2 ár.

Þú og vinnuveitandi þinn þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Ekki er búist við að útsendingin vari lengur en 2 ár.

  • Þú vinnur í öðru EES-landi eða fyrir íslenskan vinnuveitanda.

  • Þú hefur fyrir útsendingu verið tryggður af íslenska almnannatryggingakerfinu. Til dæmis ef þú bjóst og starfaðir á Íslandi fyrir útsendinguna.

  • Þú hefur verið tryggður af íslenska almannatryggingakerfinu fyrir ráðningu, ef það var ljóst við ráðningu að vinnan færi fram í öðru EES-landi.

  • Vinnuveitandi þinn hefur að jafnaði starfsemi sína á Íslandi og ræður starfsfólk sitt á Íslandi.

Sjálfstætt starfandi

Þú er tryggður af íslenska almannatryggingakerfinu ef þú starfar sjálfstætt og útsendir sjálfan þig til EES-lands í vinnu í allt að 2 ár.

Þú þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Ekki er búist við að útsendingin vari lengur en 2 ár.

  • Þú hefur rekið fyrirtækið í að minnsta kosti 2 mánuði fyrir útsendingu.

  • Þú viðheldur öllu sem er nauðsynlegt til að reka fyrirtæki á Íslandi. Til dæmis getur verið krafa um starfsstað eða skrifstofu á Íslandi, að þú borgir skatta á Íslandi, hafir íslensk starfsleyfi og haldir áfram að vera virðisaukaskattsskráður á Íslandi á meðan þú starfar erlendis.

Ef útsending er stöðvuð

Ef útsending þín er stöðvuð tímabundið í að hámarki 2 mánuði, til dæmis vegna orlofs, veikinda eða menntunar heldur útsendingin áfram eins og áður.

Ef útsending þín er stöðvuð í meira en 2 mánuði verður þú að senda nýja beiðni um að halda tryggingu í íslenska almannatryggingakerfinu.

Aðild að íslenskri tryggingavernd (.pdf)

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun