Fara beint í efnið

Halda íslenskum almannatryggingum vegna vinnu erlendis - A1

Aðild að íslenskri tryggingavernd (.pdf)

Vinna utan EES-lands

Ef þú vinnur tímabundið í landi utan EES og milliríkjasamningur um almannatryggingar er ekki til staðar, getur þú sótt um að halda áfram réttindum þínum á Íslandi á meðan á dvöl erlendis stendur.

Þú og vinnuveitandi þinn þurfið að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Þú vinnur í landi utan EES fyrir íslenskan vinnuveitanda.

  • Vinnuveitandi hefur að jafnaði starfsemi sína á Íslandi, ræður starfsfólk sitt á Íslandi og greiðir tryggingagjald á Íslandi.

Tímabil

Heimilt er að halda réttindum á Íslandi í allt að 1 ár.

Eftir fyrsta tímabil er heimilt að framlengja tryggingaskráninguna í allt að 4 ár til viðbótar ef skilyrði eru áfram uppfyllt.   

Aðild að íslenskri tryggingavernd (.pdf)

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun