Fara beint í efnið

Greiðsluþátttaka vegna stoð- og meðferðarhjálpartækja

Þrýstibúnaður

Samþykkt eru 3 pör af þrýstisokkum á 12 mánaða tímabili, þrýstingur skal að lágmarki vera 18 mmHg. Að jafnaði eru samþykktar 2 þrýstiermar á 12 mánaða tímabili.

Greitt er fyrir þrýstisokka/þrýstibúnað vegna:

  • bruna

  • langvinnra alvarlegra bláæða/sogæðavandamála

  • langvarandi bjúgsöfnunar vegna lömunar

Almennt er styrkur 70% en 90% fyrir börn og 100% vegna bruna.

Greiðsluþátttaka vegna tilbúinna þrýstisokka er 11.600 krónur miðað við 100% greiðsluþátttöku en annars hlutfall af þeirri upphæð (90% 10.450 krónur og 70% 8.150 krónur).

Sérsaumaðir þrýstisokkar eru samþykktir þegar um er að ræða veruleg líkamleg frávik vegna sjúkdóma, byggingarlags eða slysa og sogæðabjúgs, stig I. Styrkupphæð slíkra sokka er tvöföld miðað við tilbúna þrýstisokka.

Sérsaumaðir þrýstisokkar úr flatsaum eru samþykktir fyrir notendur með staðfestan sogæðabjúg (lymphoedema) stig II-III og skal sjúkdómsgreining staðfest af æðaskurðlækni að undangengnum rannsóknum. Styrkupphæð slíkra sokka er byggð á kostnaðarmati hverju sinni.

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar