Greiðsluþátttaka vegna heyrnartækjakaupa
Sjúkratryggingar veita styrk til heyrnartækjakaupa hjá öðrum en Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.
Styrkupphæð er 60.000 krónur eða 120.000 krónur eftir því hvort keypt eru tæki fyrir annað eða bæði eyru
Hægt er að sækja um styrk á 4ra ára fresti
Styrkir eru ekki skattskyldir
Seljendur verða að hafa rekstrarleyfi frá heilbrigðisráðuneyti en það eru eftirtaldir: Heyrðu, Heyrn, Heyrnartækni, Heyrnarstöðin og Lyfja Heyrn.
Rétt á styrk eiga:
Sjúkratryggðir eldri en 18 ára og þar með taldir einstaklingar á dvalar- og hjúkrunarheimilum
Þeir sem hafa tónmeðalgildi á betra eyra að lágmarki 30 dB
Umsóknarferli
Seljendur senda rafræna umsókn ásamt reikningi og heyrnarmælingu
Styrkur er greiddur inn á reikning einstaklings
Þegar styrkur hefur verið greiddur fer greiðsluskjal í Réttindagátt
einstaklings
Heyrnartæki keypt hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands
Sjúkratryggingar greiða ekki styrki vegna kaupa á heyrnartækjum hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands
Þegar heyrnartæki eru keypt þar er styrkur dreginn frá kostnaðarverði og einstaklingur greiðir mismun
Þjónustuaðili
Sjúkratryggingar