Fara beint í efnið

Greiðslusamningur vegna vanskila

Ef afborganir af láninu þínu eru komnar í vanskil getur þú haft samband við HMS og gert greiðslusamning. Hægt er að dreifa skuldinni á allt að 12 mánuði og er henni bætt við mánaðarlegar greiðslur.

Þú hefur samband í síma 440 6400 eða með tölvupósti á innheimta@hms.is. Þegar greiðslusamningur er tilbúinn færðu tölvupóst og getur nálgast samninginn á Mínar síður HMS. Ógreiddir greiðsluseðlar falla niður og þú færð nýjan greiðsluseðil í þinn netbanka.

Ef þú sérð ekki fram á að geta greitt skuldina á næstu 12 mánuðum eða húsnæðið er komið í nauðungarsölu, eru aðrar lausnir í boði.