Fara beint í efnið

Greiða skuld við Tryggingastofnun

Mánaðarlegur frádráttur

Ef þú færð greiðslur frá Tryggingastofun dreifist skuldin sjálfkrafa á 12 mánuði. Þá færðu minna greitt í hverjum mánuði þar til þú hefur borgað alla upphæðina.

  • Hámark er dregið 20% af greiðslunum sem þú færð.

  • Lágmarks frádráttur á mánuði er 3.000 krónur.

Ef upphæðin er hærri en 20% af greiðslunum þínum, er bæði dregið frá greiðslum þínum frá TR og sendur greiðsluseðill fyrir mismuninum þar til skuldin er greidd.

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun