Fara beint í efnið

Gildistími áritana í flugi

Flokksáritanir

Einshreyfils einstjórnarflugvél (single engine piston/SEP)

Flokksáritun á einshreyfils einstjórnarflugvél (SEP) gildir í tvö ár. Til að framlengja SEP áritun áður en hún fellur úr gildi þarf skírteinishafi að uppfylla annað eftirtalinna skilyrða:

  • Standast hæfnipróf með prófdómara innan þriggja mánaða áður en áritun rennur út.

  • Ljúka 12 klst. fartíma í viðeigandi flokki innan 12 mánaða áður en áritun rennur úr gildi, þar með talið

    • 12 flugtök og 12 lendingar;

    • 6 klst. fartímar sem flugstjóri, og;

    • A.m.k. 1 klst. þjálfunarflug með flugkennara (umsækjendur sem hafa staðist færnipróf eða hæfnipróf fyrir aðra flokks- eða tegundaráritun eru undanþegnir þjálfunarflugi með kennara)

Umsækjendur sem eru bæði handhafar SEP áritunar og áritunar fyrir ferðavélsvifflugu (TMG) geta uppfyllt framangreindar kröfur í hvorum flokknum sem er eða sambland af þessu og fengið framlengingu á báðum áritunum.

Fjölhreyfla einstjórnarflugvél (multi engine piston / MEP)

Flokksáritun á fjölhreyfla einstjórnarflugvél gildir í eitt ár. Til að framlengja þá áritun áður en hún fellur úr gildi þarf handhafi að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  •  Standast hæfnipróf allt að þremur mánuðum áður en áritun fellur úr gildi, og;

  •  Ljúka minnst tíu flugum á viðkomandi flokk flugvélar eða einu flugi með prófdómara (það má fara fram á meðan á hæfniprófinu stendur).

Gildistími blindflugsáritun (IR)

Blindflugsáritun gildir í eitt ár. Hæfnipróf til framlengingar á blindflugsáritun er tekið um leið og færni- eða hæfnipróf fyrir flokks- eða tegundaráritun.

Endurnýjun á útrunni áritun

Sé áritunin fallin úr gildi þarf upprifjun/mat á upprifjun hjá flugskóla áður en haft er samband við prófdómara til að bóka hæfnipróf. Flugkennari getur einnig metið þörf fyrir þjálfun til upprifjunar ef SEP áritun er útrunnin skemur en 3 ár. Gögn um upprifjun/mat á upprifjun þurfa að fylgja skýrslu um hæfnipróf.

Gildistími áritana kemur fram í skírteini. Hafi áritun eða framlenging/endurnýjun hennar ekki verið skráð í skírteinið er ekki hægt að líta svo á að hún sé gildi og neyta réttindanna, jafnvel þó kröfur til framlengingar/endurnýjun séu uppfylltar.

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa