Fara beint í efnið

Geislun í umhverfinu

Geislun er náttúrulegur hluti af umhverfi jarðarinnar. Geislun getur verið náttúruleg eða af mannavöldum.

Geislavarnir ríkisins fylgist með og vaktar geislun í umhverfinu. Áhersla er lögð á geislun af mannavöldum því það er geislun sem við getum haft áhrif á. Þegar styrkur geislunar er metinn, er gott að bera það saman við náttúrulega bakgrunnsgeislun.

Mælingar á Íslandi

Geislavarnir ríksins hafa til umráða næm skimunarkerfi og margvíslegan mælibúnað auk rannsóknastofu til að greina geislavirk efni í sýnum af mikilli nákvæmni.

Mælingar eru til dæmis gerðar á:

  • andrúmslofti

  • matvæli

  • sjó og regnvatni

Mælingar og vöktun á geislun í umhverfinu er hluti af viðbúnaði Geislavarna. Geislamælingar eru fyrst og fremst til þess að fylgjast með styrk geislavirkra efna til að fá upplýsingar um bakgrunnsgeislun á Íslandi.

Hingað til hafa mælingar sýnt að bakgrunnsgeislun á Íslandi er lítil. Því þarf ekki að hafa áhyggjur af heilsufarslegum áhrifum af geislavirkum efnum í umhverfinu.

Geislavarnir ríkisins taka saman vöktunarmælingar á geislavirkum efnum og matvælum (pdf).

Náttúruleg geislun í umhverfi

Helsta uppspretta náttúrulegrar geislunar er:

  • geislun sem berst til jarðarinnar frá himingeiminum, kölluð geimgeislun

  • geislun frá geislavirkum efnum í jarðvegi og bergi

  • geislavirk lofttegundir, til dæmis radon

  • geislavirk efni í líkamanum, til dæmis í blóði og beinum eins og C-14

Bakgrunnsgeislun er breytileg frá einum stað til annars. Sem dæmi má nefna að á Íslandi er geislun frá bergi og jarðvegi lítil miðað við mörg önnur lönd. Ástæðan er að íslenskt berg er að mestu basískst og snautt af geislavirkum efnum.

Geislun í umhverfi af mannavöldum

Geislun af mannavöldum er yfirleitt vegna starfsemi þar sem unnið er með geislun eða í starfsemi sem leiðir af sér geislavirk efni. Þetta getur til dæmis verið:

  • þar sem borað er eftir olíu og gasi

  • við rekstur kjarnorkuvera

  • í læknisfræði

Geislavirkur úrgangur er geymdur á öruggum stað og fer ekki út í umhverfið fyrr en styrkur þess er orðinn mjög lítill.

Einnig er að finna geislun í umhverfi af mannavöldum vegna fyrri kjarnorkutilrauna og kjarnorkuslysa. Þessi geislun fer minnkandi því styrkur geislunar minnkar með tímanum.

Samantekt

Geislun í umhverfinu er bæði náttúruleg og af mannavöldum. Geislavarnir ríkisins fylgjast með og mæla geislun í umhverfinu.

Bakgrunnsgeislun á Íslandi er lítil. Því þarf ekki að hafa áhyggjur af heilsufarslegum áhrifum af geislavirkum efnum í umhverfinu.

Þjónustuaðili

Geislavarnir ríkisins

Tengt efni

Geislavarnir ríkisins

Hafðu samband

Sími: 440 8200

Netfang: gr@gr.is

Afgreiðslan er opin

Alla virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Heim­il­is­fang

Rauðarárstígur 10

105 Reykjavík

Kennitala: 540286-1169