Fara beint í efnið

Gagnvirkt innkaupakerfi

Gagnvirkt innkaupakerfi er aðgengilegt öllum hæfum seljendum.

Leit í samningakerfi

Í gagnvirku innkaupaferli eru innkaupin gerð í tveimur skrefum. Fyrst eru hæfir seljendur valdir inn í kerfið og í framhaldinu eru verk, þjónusta eða vörur boðin út meðal þeirra.

Gagnvirkt innkaupakerfi er líka þekkt sem DPS, sem stendur fyrir “Dynamic Purchasing System”.

Tvær tegundir

  1. Innkaupakerfi sem er gert fyrir hönd einstakra kaupenda.

  2. Miðlægt innkaupakerfi sem Ríkiskaup gerir fyrir hönd margra kaupenda. A-hluta stofnanir ríkisins eru bundnar þeim samningum.

Innkaup

Innkaup fara fram með lokuðu útboði. Kaupandi verður að auglýsa innkaup meðal seljenda innan kerfisins og veita ítarlegar upplýsingar um innkaupin, þar með talið eðli, magn og tæknilegar upplýsingar.

Tilboð fyrir einstök innkaup

Kaupandi skal gefa seljendum innan kerfisins kost á að leggja fram tilboð fyrir hver einstök innkaup. Seljendum skal gefinn að minnsta kosti tíu almanaksdaga frestur til að leggja fram tilboð sitt.

Val á tilboðum

Val á tilboðum skal grundvallast á þeim forsendum sem tilgreindar eru í útboðsauglýsingu.

Ferlið við innkaup

  1. Verkbeiðni er send til Ríkiskaupa.

  2. Farið er eftir almennu innkaupaferli Ríkiskaupa. Innkaupaferlið skiptist í greiningu, undirbúning útboðsgagna, útboð og samningsstjórnun. Í þessu tilfelli er búið að ákveða innkaupaferlið sem er lokað útboð, án forvals.

  3. Samningar eru gerðir við þá seljendur sem bjóða hagkvæmast miðað við valforsendur hverju sinni. Þá tekur við samningsstjórnun.

Senda verkbeiðni til Ríkiskaupa

Kostir gagnvirks innkaupakerfis

  • Seljendur geta ávallt sótt um aðild á samningstíma og opið er fyrir nýjungar á markaði.

  • Breytilegar valforsendur og tæknilýsingar. Kaupandi getur fundið rétta seljendur vegna sveigjanleika kerfisins.

  • Styttri undirbúningstími. Samkeppni innan samnings er fljótlegri og auðveldari en á opnum markaði.

  • Kröfur og aðferðarfræði óskilgreind.

  • Innkaup ráðast alfarið að þörfum kaupanda á hverjum tíma. Hagstæðir samningsskilmálar fyrir viðskiptavini og stuðningur við birgjaumsýslu.

  • Ótakmarkaður fjöldi seljenda og breiður samkeppnisgrundvöllur.

Þjónustuaðili

Ríkis­kaup

Ríkiskaup

Hafðu samband

Sími: 530 1400

Netfang: rikiskaup@rikiskaup.is

Afgreiðslu­tími

Alla virka daga frá klukkan 9 til 15.

Heim­il­is­fang

Borgartúni 26, 7. hæð,
105 Reykjavík

Kennitala: 660169-4749