Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. maí 2025

Nú þarf að huga að sólarvörnum á Íslandi

Nú er kominn sá tími árs þegar sólin á Íslandi er nægilega sterk til að valda húðbruna. Það er vel þekkt að húðbruni eykur líkur á húðkrabbameini síðar á ævinni og því er fólk hvatt til að huga að sólarvörnum. Börn eru viðkvæmari en fullorðnir fyrir útfjólubláum geislum sólar og því þarf að vernda þau sérstaklega vel.

UV stuðullinn er gagnleg leið til að vita hvort þörf sé á að nota sólarvarnir á tilteknum stað á tilteknum tíma. Ef UV stuðullinn er 3 eða hærri þá er ráðlagt að verja sig fyrir sólinni, t.d. með flíkum, sólgleraugum, vera í skugga, nota sólarvörn og/eða takmarka útiveru á tímum sem sólin er sterkust. Auk húðbruna geta útfjólubláir geislar t.d. valdið skaða á augum og flýtt fyrir öldrun húðarinnar. 

Geislavarnir gera mælingar á UV stuðlinum í Reykjavík og birta niðurstöður mælinganna í rauntíma á uv.is. Síðastliðna viku hefur UV stuðullinn hæst náð 4 þegar sólin hefur verið sterkust. Eins og sést hér að neðan er þörf á að nota sólarvarnir frá um klukkan 10 til 17 en sólin er sterkust milli kl. 12 og 15.  

UV stuðull maí 2025

Því hærri sem UV stuðullinn er, því sterkari er útfjólubláa geislun sólar og því styttri tíma tekur það fyrr húðina að brenna í sólinni. Styrkur sólargeislanna nær hámarki á Íslandi í kringum sumarsólstöður þegar sólin er hæst á lofti. Á grafinu hér að neðan má sjá yfirlit yfir UV stuðulinn síðastliðið ár í Reykjavík.  

UVstuðull2024-2025

Mikilvægt er að hafa í huga að UV stuðullinn hækkar þegar ferðast er suður á bóginn. Sem dæmi má nefna verður UV-stuðullinn 9 á Tenerife í dag þegar sólin er hæst á lofti. Á ferðalögum erlendis er t.d. hægt að nota alþjóðlega UV smáforritið SunSmart til að sjá hvenær þörf er á að nota sólarvarnir yfir daginn. Þar er hægt að sjá UV stuðulinn hvar sem er í heiminum. 

 Að lokum bendum við á eftirfarandi fræðsluefni: