13. júní 2025
13. júní 2025
Árás Ísraelshers á kjarnorkuinnviði í Íran
Ísraelsher gerði árásir á innviði í Íran síðastliðna nótt. Meðal þeirra svæða sem urðu fyrir árás eru Natanz þar sem auðgun úrans fer fram. Natanz er staðsett um 300 km sunnan við höfuðborgina Teheran.

Ekki hefur mælst aukin geislavirkni í kringum Natanz. Ef kæmi til losunar geislavirkra efna yrði dreifing og áhrif mjög staðbundin. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) hefur gefið út yfirlýsingu um stöðu mála í Íran og hægt er að fylgjast með stöðunni á vef IAEA .
Geislavarnir ríkisins halda áfram að fylgjast með stöðunni.
Mynd fengin frá Wikipedia: File:Atomanlage Natanz (2022).jpg - Wikimedia Commons