Fara beint í efnið

Frestur til að gangast undir slysavarnaskóla sjómanna

Umsókn um frest til að sækja öryggisfræðslu í Slysavarnarskóla sjómanna eða hjá öðrum viðurkenndum aðila

Samgöngustofu er heimilt að veita skipverja á fiskiskipi tímabundinn frest í eitt skipti til að gangast undir öryggisfræðslu. Fresturinn er aðeins veittur til þess tíma sem hann er skráður á slíkt námskeið. Sambærileg heimild er ekki til staðar fyrir skipverja á farþega- eða flutningaskipum (reglugerð 817/2010).

Áður en sótt er um frest þarf skipverji að skrá sig á námskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna eða öðrum viðurkenndum aðila.

Kostnaður

Gjald fyrir veittan frest fer eftir gjaldskrá Samgöngustofu. Gjaldið leggst inn á reikning nr. 515-26-210777 í Íslandsbanka. Reikningseigandi er Samgöngustofa, kt: 540513-1040. Greiðslukvittun skal senda rafrænt á logskraning@samgongustofa.is. Frestur er ekki veittur nema greiðslustaðfesting liggi fyrir. 

Lög og reglugerðir um öryggisfræðslu sjómanna

Um öryggisfræðslu sjómanna er fjallað í 3. gr. og 14. gr. laga um áhafnir skipa nr. 82/2022, 3. tölul. 3. mgr. 3. gr., 5. og 6. gr. reglugerðar um lögskráningu sjómanna nr. 817/2010.



Umsókn um frest til að sækja öryggisfræðslu í Slysavarnarskóla sjómanna eða hjá öðrum viðurkenndum aðila

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa