Fara beint í efnið

Flugvéltæknar, part 66 skírteini

Umsóknareyðublað EASA form 19

Þeir sem vilja annast viðhaldsvottun loftfara sem eru með gilt tegundarskírteini frá Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA), þurfa að hafa skírteini flugvéltæknis, svokallað Part 66 skírteini.

  • Aðstoðarmaður í flokki B1, B2 og B3, sem sinna aðalviðhaldi slíkra loftfara, þurfa einnig að hafa Part 66 skírteini.

  • Aðstoðarmenn, þurfa einnig að hafa tegundaráritun fyrir loftfarið sem unnið er við.

Til að öðlast EASA Part 66 skírteini flugvéltæknis þarf umsækjandinn að sýna með prófi fram á kunnáttu í viðeigandi námsáföngum með því að leggja fram viðurkenningarvottorð (Certificate of Recognition). Slíkt viðurkenningarvottorðer gefið út af samþykktu EASA 147 viðhaldskennslufyrirtæki, sem staðfestir kunnáttu í viðeigandi námsáföngum,

  • Vottorðið skal ekki vera eldra en tíu ára þegar sótt er um Part 66 skírteini.

  • Allri verklegri reynslu einnig vera lokið innan þess tíma.

Ef vottorðið er eldra en tíu ára þarf að meta námið sérstaklega að nýju. Á vottorðinu kemur fram hvaða grunnnám var stundað, t.d. B1.1 eða B2, og hvort fullt nám flugvéltæknis var tekið, það er verklegt og bóklegt (basic training course) eða eingöngu staðist próf (basic examination).

  • Umsækjandi þarf einnig að sýna fram á verklega reynslu að loknu námi eða í kjölfar þess að hafa staðist próf. Lengd verklegrar reynslu er breytileg eftir því hvaða grunnréttindum er verið að sækjast eftir og skal vera dæmigerður þverskurður af viðhaldsverkum loftfara eins og við á.

  • Þegar sótt er um fyrsta skírteini flugvélatæknis þarf að minnsta kosti eitt ár af tilskilinni reynslu að vera nýleg reynsla.

  • Þegar sótt er um viðbótarflokka eða undirflokka við gildandi skírteini flugvéltæknis þurfa að minnsta kosti þrír mánuðir af tilskilinni reynslu að vera nýleg reynsla.

Fylgigögn með umsókn um Part 66 Skírteini

Lög og reglur
  • reglugerð (ESB) nr. 1321/2014, ásamt síðari breytingum. Reglugerðinni er skipt upp í fjóra viðauka (hluta) sem eru almennt þekktir sem Part M, Part 145, Part 66 og Part 147. Með tilvísun í Part 66 er því átt við tiltekinn hluta í reglugerðarinnar. 

  • Evrópureglugerðin er innleidd með reglugerð nr. 926/2015 og 433/2016

Umsóknareyðublað EASA form 19

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa