Fara beint í efnið

Flugöryggisáætlun

Í áætluninni eru sett fram afmörkuð verkefni er varða stefnu og markmið landsins í

  • öryggiskröfum

  • áhættustjórnun öryggis

  • öryggistryggingu

  • miðlun þekkingar og þjálfun

með það að markmiði að ná viðunandi stigi öryggis (acceptable level of safety) í öllum þáttum samgöngukerfisins er varðar flug.

Út frá áætluninni er unnið að þeim verkefnum sem falla þar undir og stuðla að auknu flugöryggi. Dæmi um slík verkefni er áhættugreining leyfishafa og tillögur að eftirlitsáætlunum sem stundum fela í sér aukið eftirlit byggt á áhættugreiningu.

Rammi Flugöryggisáætlunar

1. Stefna og markmið landsins

  • Öryggisstaðlar og viðmið

  • Fyrirsvar og ábyrgð

  • Rannsóknir flugslysa og alvarlegra flugatvika

  • Þvingunarúrræði er varðar eftirfylgni

2. Áhættustjórnun öryggis

  • Öryggiskröfur er varða slík kerfi (SMS)  hjá veitendum þjónustu í flugi

  • Samþykki á viðunandi öryggisstigi fyrir veitendur þjónustu í flugi

3. Öryggistrygging

  • Eftirlit

  • Söfnun gagna um atvik, greiningar og miðlunar þeirra

  • Umfang og tíðni eftirlits stýrist af áhættumati byggðu á gögnum

4. Miðlun og vitund

  • Miðla þekkingu og þjálfa starfsfólk innávið

  • Miðla þekkingu og þjálfa starfsfólk út á við

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa