Fara beint í efnið

Fjölskyldunámskeið í íslensku táknmáli

Samskiptamiðstöð veitir táknmálsbörnum, foreldrum og forsjáraðilum þeirra og öðrum nánum aðstandendum aðgengi að endurgjaldslausu námi í íslensku táknmáli og ráðgjöf um máltöku og málþroska táknmálsbarna.

Aðstandendur táknmálsbarna eiga lögvarinn rétt til þess að læra íslenskt táknmál.

Táknmálsnám er ekki háð tilvísunum frá lækni eða stofnun.

Markmið fjölskyldunámskeiða

Helstu markmið fjölskyldunámskeiða er að:

  • styðja og styrkja samskipti fjölskyldna á íslensku táknmáli

  • fjölskyldur táknmálsbarna geti notað íslenskt táknmál á öllum sviðum samskipta

  • tengja fjölskyldur táknmálsbarna saman

Fyrirkomulag námskeiðs

  • Kennt er einu sinni í viku, í einn og hálfan klukkutíma í senn

  • Námskeiðin eru fjölskyldum að kostnaðarlausu

  • Námskeið eru kennd á Samskiptamiðstöð en búi fólk á landsbyggðinni er hægt að sækja kennslu í gegnum fjarfundarbúnað

  • Skrá þarf nafn og aldur allra sem taka þátt í námskeiðinu

Kennsla námskeiðs

Alla miðvikudaga býður Samskiptamiðstöð foreldrum, forsjáraðilum sem og öðrum nánum aðstandendum táknmálsbarna upp á námskeið í íslensku táknmáli, þeim að kostnaðarlausu.

Kennt er frá klukkan 14:30 til 16:00 á Samskiptamiðstöð.

Hafa samband

Hægt að hringja og fá nánari upplýsingar eða koma á Samskiptamiðstöð á opnunartíma.

Viðburðir á vegum Samskiptamiðstöðvar

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra

Hafðu samband

Sími: 562 7702 

Túlkaþjónusta: tulkur@shh.is

Táknmálskennsla: taknmal@shh.is

Skrifstofa: shh@shh.is

Skrifstofa SHH

Opið alla virka daga klukkan 8-16

Túlkaþjónusta í neyðartilvikum utan skrifstofutíma - hafið samband við 112

Heimilisfang

Grensásvegur 9, 3. hæð
108 Reykjavík

Staðsetning á korti

kt. 520491-1559

Hafðu samband

Sími: 562 7702 

Túlkaþjónusta: tulkur@shh.is

Táknmálskennsla: taknmal@shh.is

Skrifstofa: shh@shh.is

Skrifstofa SHH

Opið alla virka daga klukkan 8-16

Túlkaþjónusta í neyðartilvikum utan skrifstofutíma - hafið samband við 112

Heimilisfang

Grensásvegur 9, 3. hæð
108 Reykjavík

Staðsetning á korti

kt. 520491-1559

ssh-30
sign-wiki
facebook-logo
youtube-logo