Fara beint í efnið

Fjárhagsmat leyfishafa

Flugrekendur þurfa að uppfylla kröfur um fullnægjandi fjárhagsstöðu:

Handhöfum flugrekstrarleyfa ber að afhenda Samgöngustofu árlega eftirfarandi gögn vegna mats á fjárhagsstöðu. Almennur skilafrestur er 30 júní:

  • Ársreikningur. Afhenda skal endurskoðaðan ársreikning eigi síðar en sex mánuðum eftir að viðkomandi reikningsári lýkur. Ársreikningurinn skal samanstanda af sundurliðuðum rekstrarreikningi, efnahagsreikningi og sjóðsstreymi. Ársreikningur án áritunar löggilds endurskoðanda telst ekki fullnægjandi

  • Rekstrar- og efnahagsáætlun. Rekstraráætlun fyrir næsta reikningsár skal vera með sundurliðaða tekju- og kostnaðarliði og í samanburðarhæfu formi við ársreikning. Þá skal áætlunin innihalda lausafjáráætlun fyrir komandi rekstrarár og vera sundurliðuð á mánuði. Greina skal sérstaklega frá gefnum reikniforsendum og öllum rekstrarlegum breytingum frá fyrra ári. Ekki er hægt að framkvæma fjárhagsmat nema þessum kröfum um framsetningu sé fylgt.

Samgöngustofa metur gögnin í samráði við sérfræðing á vegum stofnunarinnar og greiðist kostnaður af leyfishafa sbr. gjaldskrá Samgöngustofu. Farið er með allar fjárhagsupplýsingar sem trúnaðarmál. 

Lög og reglur
  • Lög um loftferðir og reglugerð nr. 48/2012 um sameiginlegar reglur um flugrekstur og flugþjónustu innan EES

  • Reglugerð EB 1008/2008

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa