Fara beint í efnið

Móðir getur átt rétt á lengingu fæðingarorlofs ef hún getur ekki sinnt vinnu á meðgöngu af heilsufarsástæðum. Móðir getur einnig átt rétt á framlengingu fæðingarorlofs eða fæðingarstyrks ef hún getur ekki sinnt barninu vegna veikinda sem rekja má til fæðingarinnar sjálfrar.

Allir verðandi foreldrar mega byrja í fæðingarorlofi mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag barns. 

Þungaðar konur sem verða óvinnufærar á meðgöngu geta átt rétt á fæðingarorlofsgreiðslum í allt að tvo mánuði á meðgöngu. 

Veikindi móður á meðgöngu

Veikindi móður í yfir 25% vinnu

Þunguð kona sem þarf að hætta að vinna af heilsufarsástæðum meira en mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag barns á rétt á greiðslum í fæðingarorlofi þann tíma, þó aldrei lengur en 2 mánuði. 

Þessi heimild til lengingar fellur þó niður ef barnið fæðist fyrir áætlaðan fæðingardag, þar sem þá er reiknað með að eiginleg orlofstaka móður hefjist. 

Veikindi móður í námi

Þunguð kona í námi á rétt á fæðingarstyrk þó hún uppfylli ekki kröfur um námsframvindu eða ástundun, hafi hún ekki getað stundað nám sitt vegna heilsufarsástæðna.

Skilgreining á heilsufarsástæðum:

  • Sjúkdómar sem koma upp vegna meðgöngu og valda óvinnufærni.

  • Tímabundnir eða langvarandi sjúkdómar sem versna á meðgöngu og valda óvinnufærni

  • Fyrirbyggjandi meðferð til að koma í veg fyrir fyrirburafæðingu eða vernda heilsu fósturs.

Mikilvægt er að læknir rökstyðji þörf fyrir lengingu á fæðingarorlofi eða áhrif á námsframvindu samkvæmt einhverjum þessara liða og að niðurstaða læknisskoðunar komi fram. 

Umsókn um lengingu fæðingarorlofs/fæðingarstyrks

Vegna fæðingarorlofs (fyrir mæður á innlendum vinnumarkaði):

  • Læknisvottorð vegna veikinda barnshafandi foreldris

  • Vottorð vinnuveitanda vegna veikindaréttar

Hér má nálgast staðlað form læknisvottorðs:
Vottorð vegna veikinda móður (DOC)

Vegna fæðingarstyrks (fyrir mæður í námi):

  • Læknisvottorð vegna námsárangurs og/eða ástundunar náms

Hér má nálgast staðlað form læknisvottorðs:
Vottorð vegna veikinda móður í námi (DOC)

Veikindi móður í tengslum við fæðingu

Ef móðir er ófær um að annast barn sitt á orlofstímanum vegna alvarlegra veikinda í kjölfar fæðingar, er heimilt að framlengja fæðingarorlof hennar eða fæðingarstyrk um allt að 2 mánuði.

Sjóðnum þarf að berast vottorð vegna veikinda móður þar sem kemur fram:

  • að veikindin megi rekja til sjálfrar fæðingarinnar

  • að móðirin hafi verið ófær um að annast barn sitt vegna veikindanna

  • niðurstaða læknisskoðunar

Hér má nálgast staðlað form læknisvottorðs fyrir móður á innlendum vinnumarkaði:
Vottorð vegna veikinda móður (DOC)

Hér má nálgast staðlað form læknisvottorðs fyrir móður í námi:
Vottorð vegna veikinda móður (DOC)

Öryggi og heilbrigði á vinnustöðum

Ef öryggi og heilbrigði þungaðrar konu, konu sem hefur nýlega fætt barn eða er með barn á brjósti er í hættu samkvæmt sérstöku mati, skal vinnuveitandi gera ráðstafanir til að tryggja öryggi konunnar með því að:

  • breyta tímabundið vinnuskilyrðum og/eða vinnutíma hennar

  • fela henni önnur verkefni

  • veita henni leyfi frá störfum í þann tíma sem það telst nauðsynlegt til að vernda öryggi hennar og heilbrigði

Breytingar á vinnuskilyrðum eða vinnutíma skulu ekki hafa áhrifa á launakjör til lækkunar eða önnur starfstengd réttindi. 

Að veita þungaðri konu leyfi frá störfum af öryggisástæðum

Ef veita þarf þungaðri konu leyfi frá störfum gæti hún átt rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Það á bara við um konur sem teljast starfsmenn í skilningi laga um fæðingarorlof. 

Gögn sem þurfa að berast sjóðnum:

Fyrir vinnuveitendur:

Leiðbeiningar um áhættumat í starfsumhverfi þungaðra kvenna, kvenna sem hafa nýlega fætt barn eða eru með barn á brjósti.

Stafræn umsókn um fæðingarorlof

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun