Fara beint í efnið

Hvernig legg ég fram kæru?

Kæra skal berast nefndinni skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun. Kæra má rafrænt á vef úrskurðarnefndar velferðarmála.

Ferli kærumála

  • Þegar kæra berst kallar úrskurðarnefnd velferðarmála eftir öllum gögnum málsins frá Vinnumálastofnun. 

  • Málsmeðferð er jafnan skrifleg en þó getur nefndin kallað málsaðila eða fulltrúa þeirra á fund. 

  • Úrskurðarnefndin skal tryggja að aðili máls eigi þess kost að tjá sig um efni máls áður en nefndin kveður upp úrskurð sinn, enda telji nefndin að afstaða hans og rök fyrir henni liggi ekki fyrir í gögnum málsins eða slíkt sé augljóslega óþarft.

  • Að öðru leyti fer um málsmeðferð hjá nefndinni samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni.

  • Úrskurðarnefndin skal kveða upp úrskurð svo fljótt sem kostur er og að jafnaði innan þriggja mánaða eftir að henni berst mál nema sérstakar ástæður hamli, og skal kærandi þá upplýstur um ástæður tafar og hvenær vænta má úrskurðar.

Hvað gildir meðan kæran er í ferli?

Ákvörðunin sem verið er að kæra er almennt í gildi meðan kærumálið er í ferli, nema lög kveði á um annað. Úrskurðarnefndinni er þó heimilt að fresta áhrifum ákvörðunarinnar sem kærð er meðan kæran er til meðferðar.

  • Stjórnsýslukæra frestar þó aðför á grundvelli ákvörðunar Vinnumálastofnunar um endurkröfu ofgreiddra greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði, sbr. 6. mgr. 15. gr. a laganna.

  • Úrskurðir nefndarinnar um endurkröfu ofgreiddra greiðslna samkvæmt lögunum eru aðfararhæfir.

Aðgerðir eftir úrskurð velferðarnefndar

Ekki er hægt að kæra úrskurði nefndarinnar til æðra stjórnvalds.

Úrskurðir nefndarinnar koma þó ekki í veg fyrir að hægt sé að leggja mál fyrir dómstóla eða umboðsmann Alþingis.

Upplýsingar um úrskurðarnefnd velferðarmála.

Úrskurðir úrskurðarnefndar velferðarmála.


Úrskurðarnefndar velferðarmála, 
Katrínartúni 2 - 11. hæð, 
105 Reykjavík. 
Sími 551 8200. 
Netfang: postur@urvel.is

Úrskurðarnefndin er sjálfstæð og óháð í störfum sínum.

Stafræn umsókn um fæðingarorlof

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun