Fara beint í efnið

Endurskin

Mikilvægi endurskinsmerkja

Í myrkri sjást óvarðir vegfarendur (gangandi, hjólandi) illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða og er notkun endurskinsmerkja þess vegna mikilvæg og í sumum tilfellum nauðsynleg.

Það er staðreynd að ökumenn sjá óvarða vegfarendur með endurskin fimm sinnum fyrr en ella og því getur notkun endurskinsmerkja skilið milli lífs og dauða.

Allir ættu að nota endurskinsmerki, jafnt börn sem fullorðnir. Börn sjást verr en fullorðnir og eiga það auk þess til að taka hvatvísar ákvarðanir án þess að hugsa um þær hættur sem eru fyrir hendi. Mikilvægt er að foreldrar noti endurskinsmerki til þess að sýna börnum sínum gott fordæmi.

Staðsetning endurskinsmerkja

Endurskinsmerkin eiga að vera sýnileg og er best að hafa þau á eftirfarandi stöðum:

  • Fremst á ermum 

  • Hangandi meðfram hliðum 

  • Á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum  

Þá virkar endurskin eins og blikkljós þegar ljós skín á þau. Því fyrr og betur sem ökumenn greina óvarða vegfarendur þeim mun minni líkur eru á að slys verði.

Endurskinmerki

Auk þess að útvega sér endurskinsmerki til að hengja á eða festa á fötin er hægt að finna flíkur og töskur með endurskini í. Talsvert úrval ætti að vera af vetrarúlpum, skokkfatnaði og skólatöskum með endurskini.

Listi yfir söluaðila endurskinsmerkja

Samgöngustofa hefur fengið upplýsingar um að eftirtaldir aðilar selji eða gefi endurskinsmerki eða endurskinsvesti. Ef einhverja vantar á listann, endilega sendið okkur ábendingu á netfangið fraedsla@samgongustofa.is.

Auk listans að ofan eru endurskinsmerki til í skúffum og skápum flestra heimila.

Endurskinsmerki - börn með tösku