Fara beint í efnið

Endurbótalán

Umsókn um endurbótalán

Sækja um

Þú sækir um endurbótalán á lánavef HMS. Þar skráirðu inn upplýsingar um þig, viðgerðirnar og hvers konar lán þú vilt taka.

Fylgigögn

  • Álagningarseðill síðustu skattaskýrslu.

  • Ef lánið er viðbótarlán við lán hjá annarri lánastofnun þarf staðfestingu á upphæð og lánskjörum grunnlánsins.

  • Áætlun eða staðfesting á framkvæmdakostnaði.

Í framhaldi af umsókninni er þér beint í greiðslumat hjá CreditInfo til að kanna lánshæfi.

Þú færð staðfestingarpóst þegar umsóknin hefur verið send inn. Ráðgjafi mun hafa samband innan 3 virkra daga. Ef beðið er um viðbótargögn er mikilvægt að senda þau innan frestsins sem er gefinn, annars fellur umsókn úr gildi.

Þú getur alltaf fylgst með stöðu umsóknar á Mínum síðum HMS.

Endurbótum ólokið

Lán er ekki greitt út fyrr en framkvæmdum er lokið. Þó er hægt að fá fyrirframgreitt gegn bankaábyrgð.

Önnur fylgigögn

Lán samþykkt

  1. Þegar staðfesting á framkvæmdakostnaði og verklokum hefur borist er lán sent í skjalagerð. Það tekur vanalega 1 til 3 virka daga.

  2. Þegar lánaskjölin eru tilbúin getur þú sótt þau á afgreiðslutíma til HMS í Borgartúni 21 og farið með í þinglýsingu.

  3. Þegar lánaskjölum hefur verið þinglýst getur þú sent eða farið með lánaskjölin aftur til HMS.

Endurbótum lokið

Önnur fylgigögn

Með umsókninni þarf að fylgja staðfesting á framkvæmdakostnaði.

Lán samþykkt

  1. Um leið og lánsumsókn er samþykkt er lán sent í skjalagerð. Það tekur vanalega 1–3 virka daga.

  2. Þegar lánaskjölin eru tilbúin getur þú sótt þau á afgreiðslutíma til HMS í Borgartúni 21 og farið með í þinglýsingu.

  3. Þegar kaupsamningi hefur verið þinglýst getur þú sent eða farið með lánaskjölin aftur til HMS.

Útgreiðsla

Fyrsti vaxtadagur er 5 dögum frá kaupdegi láns. Fyrsta afborgun af láni er fyrsta dag annars mánaðar eftir það.

Dæmi: Fyrsti vaxtadagur er 10. janúar. Fyrsta afborgun af láni er 1. mars.

Þú getur fylgst með stöðu láns og greitt inn á það á Mínum síðum HMS.

Láni synjað

Ef lánsumsókn er synjað færðu tölvupóst með formlegu ákvörðunarbréfi með ástæðum synjunar. Ef einhver gögn vantaði eða forsendur hafa breyst getur þú sótt um endurupptöku og veitt nýjar upplýsingar.

Ef þú ert ósammála niðurstöðunni getur þú kært hana til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Umsókn um endurbótalán