Fara beint í efnið

Endurbótalán

Umsókn um endurbótalán

Endurbótalán eru veitt fólki sem þarf að sinna nauðsynlegu viðhaldi eða endurbótum á húsnæði sínu. Þegar framkvæmd er í gegnum húsfélag sækir hver íbúi um lán fyrir sig. Endurbótalán eru greidd að framkvæmdum loknum.

  • Fasteignamat íbúðar verður að vera lægra en 73 milljónir.

  • Heildarlán hjá HMS getur að hámarki verið 44 milljónir.

  • Lán getur verið allt að 80% af endurbótakostnaði.

  • Lágmarkskostnaður er 625 þúsund krónur.

  • Húsnæðið þarf að vera eldra en 10 ára.

Lánshæfar endurbætur

Endurbætur sem hægt er að fá lán fyrir eru:

  • Viðgerðir utanhúss.

  • Endurnýjun á raf- og vatnslögnum.

  • Málningarvinna og endurnýjun innréttinga ef það er hluti af framkvæmd vegna annarrar viðgerðar.

Það er ekki lánað til eigin vinnu né gefins efnis eða vinnu.

Umsókn um endurbótalán