Fara beint í efnið

Dvalarleyfi fyrir trúboða

Umsókn um dvalarleyfi

Réttindi og skyldur

  • Dvalarleyfi fyrir trúboða er að hámarki veitt til eins árs en þó aldrei lengur en til þess tíma sem boð frá trúfélagi eða þjóðkirkjunni nær yfir.

    • Umsækjandi um slíkt leyfi má ekki byrja að starfa fyrir trúfélag eða þjóðkirkjuna fyrr en dvalarleyfi hefur verið veitt.

  • Dveljist handhafi leyfisins lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfið verið fellt niður. Ef handhafi skráir lögheimili sitt úr landi fellur dvalarleyfið sjálfkrafa niður. Þrátt fyrir að dvalarleyfi hafi fallið niður er hægt að sækja um endurnýjun á dvalarleyfi, ef það er gert innan gildistíma fyrra dvalarleyfis og sanngirnisástæður mæla með því.

Réttur til endurnýjunar leyfis

  • Dvalarleyfið má endurnýja til eins árs í senn í sérstökum tilvikum (til að mynda fyrir nunnur og presta), að því gefnu að skilyrði leyfisins séu enn uppfyllt.

Réttur til fjölskyldusameiningar

  • Dvalarleyfið veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar.

Réttur til að vinna

  • Dvalarleyfið veitir ekki rétt til að vinna launað starf á Íslandi.

Réttur til ótímabundins dvalarleyfis

  • Dvalarleyfið getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.

    • Athugið að eitt af skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis er að hafa ekki hafa dvalist meira en 90 daga erlendis samtals á hverju ári á gildistíma dvalarleyfis, talið frá útgáfudegi leyfis.

Umsókn um dvalarleyfi

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun