Fara beint í efnið

Dvalarleyfi fyrir foreldri barna yngri en 18 ára

Dvalarleyfi fyrir foreldri barna yngri en 18 ára

Réttindi og skyldur

  • Dvalarleyfi fyrir foreldri barna yngri en 18 ára er að jafnaði veitt til eins árs í senn en að hámarki í tvö ár.

    • Ef leyfið er veitt á grundvelli fjölskyldusameiningar við handhafa tímabundins dvalarleyfis getur það þó aldrei gilt lengur en dvalarleyfi þess einstaklings.

  • Dveljist handhafi leyfisins lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfið verið fellt niður. Dvalarleyfi útlendings fellur sjálfkrafa niður þegar lögheimili hans, sem skráð var hér á landi, hefur verið skráð erlendis í þrjá mánuði.

Réttur til endurnýjunar leyfis

  • Dvalarleyfið má endurnýja að hámarki í tvö ár, séu skilyrði leyfis enn uppfyllt, en þó getur leyfið aldrei gilt lengur en leyfi þess sem umsækjandi leiðir rétt sinn af.

  • Þrátt fyrir að dvalarleyfi hafi fallið niður er hægt að sækja um endurnýjun á dvalarleyfi, ef það er gert innan gildistíma fyrra dvalarleyfis og sanngirnisástæður mæla með því.

Réttur til fjölskyldusameiningar

  • Dvalarleyfið veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar.

Réttur til að vinna

  • Handhafar dvalarleyfis fyrir foreldri barna yngri en 18 ára þurfa að sækja sérstaklega um atvinnuleyfi til að mega stunda vinnu hér á landi, sjá leiðbeiningar í lista yfir fylgigögn.

    • Þeir mega ekki byrja að vinna fyrr en dvalar- og atvinnuleyfi hefur verið veitt.

    • Þeir mega ekki vinna fyrir annan atvinnurekanda en þann sem atvinnuleyfið var veitt til.

Réttur til ótímabundins dvalarleyfis

  • Dvalarleyfið getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.

    • Athugið að eitt af skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis er að hafa ekki hafa dvalist meira en 90 daga erlendis samtals á hverju ári á gildistíma dvalarleyfis, talið frá útgáfudegi leyfis.

Dvalarleyfi fyrir foreldri barna yngri en 18 ára

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun