Fara beint í efnið

Dvalarleyfi fyrir foreldri barna yngri en 18 ára

Dvalarleyfi fyrir foreldri barna yngri en 18 ára

Dvalarleyfið er veitt forsjárforeldri barns, sem er yngra en 18 ára og búsett á Íslandi, ef það er nauðsynlegt annaðhvort

  • til að viðhalda umgengni foreldris við barn sitt eða

  • til þess að íslenskt barn getið búið áfram hér á landi.

Umsókn

Umsóknir er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi.

Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar eða með því að senda umsókn í bréfpósti. Áður en það er gert er nauðsynlegt að greiða fyrir umsókn með millifærslu í banka og þarf greiðslukvittun að fylgja umsókn til staðfestingar, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds.

Útlendingastofnun (sjá á korti)
Dalvegi 18
201 Kópavogi
Ísland

Einnig er hægt að leggja inn umsókn og greiða fyrir í afgreiðslu Útlendingastofnunar eða hjá embættum sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.

Kostnaður

Afgreiðslugjald er 16.000 krónur. Ógreidd umsókn verður endursend umsækjanda. Afgreiðslugjald er ekki endurgreitt þótt umsækjandi hætti við umsókn.

Afgreiðslutími

Hægt er að fylgjast með því hvaða umsóknir hafa verið teknar til vinnslu á síðunni staða mála og afgreiðslutími dvalarleyfa.

Dvöl á landinu meðan sótt er um

Athugaðu hvort þú sért áritunarskyld/ur.

Lög

Dvalarleyfið er veitt á grundvelli 3. málsgreinar 72. greinar laga um útlendinga.

Dvalarleyfi fyrir foreldri barna yngri en 18 ára

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun