Fara beint í efnið

Dvalarleyfi fyrir foreldri 67+

Dvalarleyfi fyrir foreldri 67+

Réttindi og skyldur

  • Dvalarleyfi fyrir foreldri 67 ára og eldri er að jafnaði veitt til eins árs í senn en að hámarki í tvö ár.

    • Ef leyfið er veitt á grundvelli fjölskyldusameiningar við handhafa tímabundins dvalarleyfis getur það þó aldrei gilt lengur en dvalarleyfi þess einstaklings.

  • Dveljist handhafi leyfisins lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfið verið fellt niður. Ef handhafi skráir lögheimili sitt úr landi fellur dvalarleyfið sjálfkrafa niður. Þrátt fyrir að dvalarleyfi hafi fallið niður er hægt að sækja um endurnýjun á dvalarleyfi, ef það er gert innan gildistíma fyrra dvalarleyfis og sanngirnisástæður mæla með því.

Réttur til endurnýjunar leyfis

  • Dvalarleyfið má endurnýja í að hámarki í tvö ár, séu skilyrði leyfis enn uppfyllt, en þó getur leyfið aldrei gilt lengur en leyfi þess sem umsækjandi leiðir rétt sinn af.

Réttur til fjölskyldusameiningar

  • Dvalarleyfið veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar.

Réttur til að vinna

  • Handhafar dvalarleyfis fyrir foreldri 67 ára og eldri þurfa að sækja sérstaklega um atvinnuleyfi til að mega stunda vinnu hér á landi, sjá leiðbeiningar í lista yfir fylgigögn.

    • Þeir mega ekki byrja að vinna fyrr en dvalar- og atvinnuleyfi hefur verið veitt.

    • Þeir mega ekki vinna fyrir annan atvinnurekanda en þann sem atvinnuleyfið var veitt til.

Réttur til ótímabundins dvalarleyfis

  • Dvalarleyfið getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. 

    • Athugið að eitt af skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis er að hafa ekki hafa dvalist meira en 90 daga erlendis samtals á hverju ári á gildistíma dvalarleyfis, talið frá útgáfudegi leyfis.

Dvalarleyfi fyrir foreldri 67+

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun