Fara beint í efnið

Dvalarleyfi fyrir börn

Dvalarleyfi fyrir börn

Réttindi og skyldur

  • Dvalarleyfið er að jafnaði veitt til eins árs í senn en að hámarki í tvö ár.

    • Ef leyfið er veitt á grundvelli fjölskyldusameiningar við handhafa tímabundins dvalarleyfis getur það þó aldrei gilt lengur en dvalarleyfi þess einstaklings.

  • Dveljist handhafi leyfisins lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfið verið fellt niður. Dvalarleyfi útlendings fellur sjálfkrafa niður þegar lögheimili hans, sem skráð var hér á landi, hefur verið skráð erlendis í þrjá mánuði.

Réttur til endurnýjunar leyfis

  • Dvalarleyfið má endurnýja að hámarki í tvö ár, séu skilyrði leyfis enn uppfyllt, en þó getur leyfið aldrei gilt lengur en leyfi þess sem umsækjandi leiðir rétt sinn af.

  • Þrátt fyrir að dvalarleyfi hafi fallið niður er hægt að sækja um endurnýjun á dvalarleyfi, ef það er gert innan gildistíma fyrra dvalarleyfis og sanngirnisástæður mæla með því.

  • Dvalarleyfið má endurnýja þrátt fyrir að barn sé orðið 18 ára en þá er skilyrði að barnið 

    • stundi nám eða störf hér á landi,

    • sé búsett hjá foreldri og

    • sé hvorki í hjúskap né sambúð.

Réttur til fjölskyldusameiningar

  • Dvalarleyfið veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar.

Réttur til að vinna

  • Barn sem er með dvalarleyfi í gildi má vinna án atvinnuleyfis til 18 ára aldurs. Eftir að barn hefur náð 18 ára aldri má það ekki vinna nema fá útgefið atvinnuleyfi. 

Réttur til ótímabundins dvalarleyfis

  • Dvalarleyfið getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.

    • Athugið að eitt af skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis er að hafa ekki hafa dvalist meira en 90 daga erlendis samtals á hverju ári á gildistíma dvalarleyfis, talið frá útgáfudegi leyfis.

Dvalarleyfi fyrir börn

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun